Innlent

Karlmaður á þrítugsaldri ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Maðurinn flúði úr landi þó hann hefði verið úrskurðaður í farbann. Gefa þurfti út evrópska handtökuskipun til að fá hann aftur til landsins. 
Maðurinn flúði úr landi þó hann hefði verið úrskurðaður í farbann. Gefa þurfti út evrópska handtökuskipun til að fá hann aftur til landsins.  Vísir/Vilhelm

Karlmaður á þrítugsaldri, sem er af rúmensku bergi brotinn, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa ekki komið Daníel Eiríkssyni til bjargar, sem lést í kjölfarið.

Daníel var fæddur árið 1990 og slasaðist alvarlega fyrir utan heimili sitt í Kópavogi föstudaginn 2. apríl. Í ákærunni segir að Daníel hafi haldið með báðum höndum í rúðu á bíl sem sá ákærði ók og dregist eða hlaupið með bílnum tæpa fjórtán metra áður en hann féll í jörðina. Bílnum ók maðurinn á um 15 til 20 kílómetra hraða. 

Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald strax sömu helgi og Daníel lést vegna rannsóknarhagsmuna. Hann var síðar úrskurðaður í farbann en þrátt fyrir það tókst honum að fara úr landi og þurfti að gefa út evrópska handtökuskipun til að koma honum aftur til landsins. 

Er maðurinn til vara ákærður fyrir hættubrot og fyrir að hafa látið farast fyrir að koma Daníel til bjargar. RÚV greinir fyrst frá.

Fram kemur í ákæru að þegar Daníel hafi fallið í jörðina hafi maðurinn ekið í burtu án þess að kanna líðan Daníels. Telur héraðssaksóknari að það hafi stofnaði lífi Daníels og heilsu í augljósa hættu en hann lést á sjúkrahúsi daginn eftir vegna höfuðáverka sem hann hlaut af. 

Maðurinn segist ekki hafa áttað sig á alvarleika áverka Daníels og að hann hafi látist af slysförum. Fjölskylda Daníels fer fram á fimmtán milljónir í miskabætur. 


Tengdar fréttir

Lög­regla hefur lokið rann­sókn vegna and­láts í Vinda­kór

Rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á andláti Daníels Eiríkssonar. Daníel fannst illa leikinn fyrir utan heimili sitt í Vindakór þann 2. apríl síðastliðinn og lést af sárum sínum á Landspítalanum daginn eftir.

Grunaður um manndráp en komst úr landi á nýju vegabréfi

Til stendur að gefa út evrópska handtökuskipun vegna rúmensks karlmanns sem flúði land á dögunum þrátt fyrir að vera í farbanni grunaður um manndráp. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögreglu vita hvar maðurinn er niðurkominn en talið er að hann hafi orðið sér út um nýtt vegabréf og þannig komist út landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×