Fótbolti

Albert og félagar enduðu riðlakeppnina á sigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Albert Guðmundsson lék allan leikinn í liði AZ Alkmaar í kvöld.
Albert Guðmundsson lék allan leikinn í liði AZ Alkmaar í kvöld. Laurens Lindhout/Soccrates/Getty Images

Alls er nú átta af 15 leikjum kvöldsins í lokaumferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu lokið. Albert Guðmundsson og félagar hans í AZ Alkmaar unnu 1-0 sigur gegn Randers og Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt gerðu 1-1 jafntefli gegn Zorya og misstu þar með af toppsæti C-riðils.

Varamaðurinn Thijs Oosting skoraði eina mark leiksins í viðuregin AZ Alkmaar á 87. mínútu og tryggði liðinu þar með sigur. Albert spilaði allan leikinn í liði Alkmaar, en liðið endar með 14 stig í efsta sæti D-riðils.

Í sama riðli sat Rúnar Már Sigurjónsson allan tíman á bekknum fyrir CFR Cluj er liðið vann 2-0 sigur gegn Jablonec, en sigur Cluj þýðir að Randers fer áfram á kostnað Jablonec.

Þá spilaði Alfons Sampsted allan leikinn fyrir Bodø/Glimt er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Zorya. Sigur hefði tryggt Bodø/Glimt efsta sæti riðilsins, en liðið þarf að sætta sig við annað sætið eftir að Roma vann 2-3 sigur gegn CSKA-Sofia.

Úrslit kvöldsins

A-riðill

Alashkert 1-1 Maccabi Tel Aviv

LASK 3-0 HJK

B-riðill

Gent 1-0 Flora Tallin

Partizan Beograd 1-1 Anorthosis

C-riðill

CSKA-Sofia 2-3 Roma

Zorya 1-1 Bodø/Glimt

D-riðill

AZ Alkmaar 1-0 Randers

CFR Cluj 2-0 Jablonec




Fleiri fréttir

Sjá meira


×