Taldi borðleggjandi að fá „heilasérfræðing“ til Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 8. desember 2021 10:31 Ralf Rangnick veit að það er ekki nóg að þjálfa líkamann. Það þarf einnig að þjálfa hugann. Getty/Simon Stacpoole Ralf Rangnick er byrjaður að bæta við starfslið sitt eftir að hafa tekið við sem knattspyrnustjóri Manchester United í nýliðinni viku. Hann hefur meðal annars ráðið íþróttasálfræðing sem reynst hefur honum vel.
Hinn 46 ára gamli Sascha Lense, „heilasérfræðingur“ eins og Rangnick kallar hann, hefur áður unnið með Rangnick hjá Schalke og RB Leipzig. Lense var sjálfur leikmaður á sínum tíma og lék í næstefstu deild Þýskalands. Lense er ætlað að hjálpa til við hugarþjálfun leikmanna United sem Rangnick er sannfærður um að þörf sé fyrir. „Fyrir mér er þetta algjörlega borðleggjandi. Þetta snýst ekki um að koma leikmönnum á rauða sófann og halda í hönd þeirra. Ef að maður er með sérþjálfara fyrir markvörslu, sóknarleik, líkamsrækt og þolþjálfun, þá ætti maður að vera með heilasérfræðing líka,“ sagði Rangnick. „Á síðustu árum hafa flest félög í Þýskalandi ráðið íþróttasálfræðing. Ég var með Hans-Dieter Hermann, núverandi íþróttasálfræðing þýska landsliðsins, með mér hjá Ulm árið 1998. Það var líklega fyrsta félagið sem gerði þetta,“ sagði Rangnick. „Þetta snýst um að sýna leikmönnum hvernig heilinn getur hjálpað líkamanum, og að hann vinni ekki gegn honum. Þegar við ræðum um fótbolta þá vitum við að meirihlutinn snýst um heilann – hvað er maður að hugsa? Hvernig greinir maður aðstæðurnar? Leikmennirnir, þjálfarateymið og allir sem tilheyra liðinu okkur ættu að hugsa með réttum hætti,“ segir Rangnick sem vill að Lense verði sýnilegur á æfingasvæðinu og taki virkan þátt. Rangnick hefur einnig fengið Chris Armas, fyrrverandi stjóra New York Red Bulls og FC Toronto, inn í þjálfarateymi sitt. Áhrifa þeirra Lense og Armas verður þó ekki farið að gæta í kvöld þegar United tekur á móti Young Boys í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu, enda bíða þeir báðir eftir atvinnuleyfi.
Enski boltinn Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Enski boltinn Draumur að rætast hjá bræðrunum Fótbolti Kærasti Fallons Sherrock niðurbrotinn eftir sárt tap Sport Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti „Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“ Fótbolti „Fyrir mig er mikilvægt að liðið geri það sem við biðjum um“ Körfubolti Hvar er þessi? „Þetta er eitthvað biblíudæmi“ Körfubolti „Sóknin alls ekki klár hjá okkur“ Körfubolti Félögunum refsað en Jackson sleppur Enski boltinn Fleiri fréttir Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Sjá meira