Innlent

Þyngdu dóm fyrir kyn­ferðis­brot gegn al­var­lega fötluðum skjól­stæðingi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Brotin voru framin  sumarið 2016 á um þriggja mánaða tímabili. Síðasta skiptið átti sér stað í Heiðmörk.
Brotin voru framin  sumarið 2016 á um þriggja mánaða tímabili. Síðasta skiptið átti sér stað í Heiðmörk. Vísir / Vilhelm

Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir manni sem á síðasta ári var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn fötluðum skjólstæðingi sínum. Dómurinn var þyngdur úr tveimur árum í þrjú.

Maðurinn var upphaflega dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í júlí á síðasta ári. Hann var þá sakfelldur fyrir að hafa fróað skjólstæðingi sínum í þrígang og notfært sér þannig andlega og líkamlega fötlun hans en hinn dæmdi hafði starfað sem stuðningsfulltrúi brotaþola og annast hann í um áratug. 

Í dómi Landsréttar kemur fram að manninum hafi verið fullljós þroski og skilningur skjólstæðings síns og að brotaþoli hafi ekki við neinar aðstæður haft forsendur eða getu til að óska eftir eða gefa samþykki fyrir verknaði hins dæmda. 

Í dómnum er ennfremur sagt að maðurinn sé sakfelldur fyrir alvarleg brot gegn ungum fötluðum manni sem honum hafði verið trúað fyrir en hann hafi ítrekað nýtt sér algjört varnarleysi brotaþola og engu skeytt um hann og stöðu hans. Ásetningur hins dæmda til verksins var talinn sterkur.

Í ákæru kemur fram að þolandinn sé með djúpa þroskahömlun, ódæmigerða einhverfu, heilalömum og flogaveiki og því hvorki getað spornað við háttsemi mannsins né skilið þýðingu hennar. Samkvæmt niðurstöðu matsmanna, sem fengnir voru til að leggja mat á hæfni brotaþola til að eiga samskipti við ákærða, hefur brotaþoli ekki hæfni til að láta í ljós sjálfstæðan vilja til kynmaka. Endurteknar athuganir á greindarþroska sýna vitsmunaþroska sem samsvarar þroska 18 mánaða barns og líklega yngra.

Auk þess að dæma manninn í þriggja ára fangelsi var hann dæmdur til að greiða áfrýjunarkostnað málsins, 1,2 milljónir í skaðabætur til brotaþola auk málsvarnarlauna verjanda síns og þóknun réttargæslumanns brotaþola. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×