Andrea Mist riftir samningi sínum í Svíþjóð Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. nóvember 2021 23:31 Andrea Mist í leik með Þór/KA sumarið 2018. Vísir/Vilhelm Andrea Mist Pálsdóttir hefur fengið sig lausa frá sænska knattspyrnufélaginu Växjö en liðið féll úr efstu deild þar í landi á dögunum. Hún segir sænsku B-deildina einfaldlega ekki nægilega sterka.
Þetta kemur fram í viðtali Andreu Mist við Akureyri.net nýverið en hún er uppalin á Akureyri. Lék hún með Þór/KA í Pepsi Max deild kvenna frá 2016 til 2019. „Mér þykir eiginlega ömurlegt að þurfa að rifta samningnum því mér finnst mjög gott að vera hérna. Næstefsta deild í Svíþjóð er bara ekki nógu góð. Það gerði engin ráð fyrir því að Växjö myndi falla. Liðið varð í 5. sæti sumarið áður og hér eru margir góðir leikmenn. Okkur gekk bara rosalega illa að skora. “ sagði Andrea Mist í viðtalinu við Akureyri.net. Hin 23 ára gamla Andrea Mist segist ekki viss hvar hún mun spila á næstu leiktíð. Ásamt því að leika með Þór/KA og Växjö hefur hún einnig leikið á Ítalíu og þá samdi hún við Breiðablik skömmu áður en hún hélt til Svíþjóðar. „Ég get vel hugsað mér að spila áfram í Svíþjóð. Umboðsmaðurinn minn er að skoða eitthvað en svo getur vel verið að ég komi heim til Íslands og spili þar. Það kemur bara í ljós.“
Fótbolti Sænski boltinn Mest lesið Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Körfubolti Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Fótbolti Meikle skaut Littler skelk í bringu Sport Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Fótbolti Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Fótbolti Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Íslenski boltinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Fótbolti „Ég er ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf“ Sport Lengi getur vont versnað hjá Man. City Enski boltinn Haltur Mahomes skoraði snertimark Sport Fleiri fréttir Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Fernukonan komin heim og áritar í Smáralind í dag Englendingar syrgja mann úr heimsmeistaraliðinu frá 1966 Emelíu sýnt mikið traust og samningurinn framlengdur: „Við sáum gæðin í sumar“ Rice og Calafiori klárir en Crystal Palace verður án Eze Dele Alli ekki í leikformi og farinn frá Everton Meiðslalistinn lengist í Mílanó Tvö mörk skoruð fyrstu tvær mínúturnar í sigri Bayern Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“ „Svekkjandi fyrir Víkinga“ ef leikurinn fer fram erlendis Ísak Bergmann skoraði í slæmu tapi Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings Áfall bætist við ógöngur Man. City Króatíski metalhausinn á að bjarga málunum „Ekki það góður leikmaður miðað hvað við tölum mikið um hann“ Sjá meira
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“