Eiginkona Abidals grunuð um að hafa látið berja Hamraoui í hefndarskyni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. nóvember 2021 07:31 Eric og Hayet Abidal hafa verið gift síðan 2003. getty/Jean Catuffe Eiginkona Erics Abidal, fyrrverandi leikmanns Barcelona og franska landsliðsins, er grunuð um að hafa staðið á bak við árásina á Kheiru Hamraoui, leikmanni Paris Saint-Germain.
Í síðustu viku drógu tveir grímuklæddir menn Hamraoui út úr bíl fyrir utan heimili hennar í París og börðu hana í fæturna með járnrörum. Samherji Hamraouis, Aminata Diallo, sem keyrði bílinn, var í kjölfarið handtekin, grunuð um að hafa skipulagt árásina. Henni var síðan sleppt úr varðhaldi eftir yfirheyrslu. Grunurinn beindist því næst að fyrrverandi kærasta Hamraouis en í aðdraganda árásarinnar fengu samherjar hennar hringingar frá honum þar sem hann sagði hana hafa eyðilagt líf sitt. Franskir fjölmiðlar greina nú frá því að eiginkona Abidals, Hayet, sé grunuð um að hafa skipulagt árásina á Hamraoui til að hefna sín á henni vegna meints ástarsambands þeirra Abidals. Hann var íþróttastjóri Barcelona þegar Hamraoui gekk í raðir félagsins 2018 og þá þótti dularfullt að SIM-kortið í síma hennar var skráð á hann. Abidal og Hayet hafa verið gift í átján ár og eiga fimm börn saman. Hann lék með Barcelona á árunum 2007-13 og var svo íþróttastjóri félagsins um tveggja ára skeið. Abidal var rekinn frá Barcelona eftir að karlalið félagsins steinlá fyrir Bayern München, 8-2, í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fyrra. Eftir þrjú ár hjá Barcelona fór Hamraoui aftur til PSG í sumar. Hún lék ekki með liðinu þegar það tapaði 6-1 fyrir Lyon um helgina. Sömu sögu er að segja af Diallo.
Árásin á Kheiru Hamraoui Franski boltinn Frakkland Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Sjá meira