Pop-up í Pipar og Salt Pipar og salt 19. nóvember 2021 08:52 „Pipar og Salt var í raun fyrsta alvöru kokkabúðin á Íslandi með mikla sérvöru sem fékkst ekki annarsstaðar." Þau Sigríður Þorvarðardóttir og Paul Newton bjóða gestum til stofu heima hjá sér á morgun en þau ráku Pipar og salt í 27 ár.
Dyrnar að hinni ástsælu verslun Pipar og Salt að Klapparstíg 44 verða opnaðar aftur á morgun, laugardag, þegar blásið verður til Pop-up viðburðar. Þau Sigríður Þorvarðardóttir og Paul Newton bjóða gestum til stofu heima hjá sér þennan laugardag en þau ráku verslunina í 27 ár samfleytt áður en þau færðu reksturinn yfir í vefverslun árið 2015. Þau Sigríður Þorvarðardóttir og Paul Newton ráku verslunina í 27 ár samfleytt áður en þau færðu reksturinn yfir í vefverslun árið 2015. Dóttir þeirra Anna Kristín Newton og Margrét H. Skúladóttir reka vefverslunina í dag. „Þetta er þeirra ævistarf. Búðin var á neðri hæðinni í þessu fallega timburhúsi sem þau gerðu upp. Sjálf búa þau á efri hæðinni og Popup verslunin verður þar, inni í stofu hjá þeim. Þau ætluðu sér að setjast í helgan stein þegar þau lokuðu versluninni 2015 en gátu það náttúrlega ekkert þegar á hólminn var komið og opnuðu vefverslun, sem er opin allan ársins hring,“ segir Anna Kristín Newton, dóttir hjónanna en hún heldur nú utan um rekstur vefverslunarinnar ásamt Margréti H. Skúladóttur. „Við Margrét tökum við góðu búi og mikilli arfleifð. Pipar og Salt var í raun fyrsta alvöru kokkabúðin á Íslandi með mikla sérvöru sem fékkst ekki annarsstaðar. Fyrsta sushisettið fékkst til dæmis í Pipar og salt og skemmtilegar bökunarvörur sem höfðu ekki sést hérlendis á þessum tíma, kínverskar skálar sem voru illfáanlegar annarsstaðar og ýmislegt fleira. Þau eru miklir frumkvöðlar og matgæðingar sjálf,“ segir Anna Kristín, þær Margrét leggi mikla áherslu á góða og persónulega þjónustu í takt við sögu Pipars og Salt. „Það er ákveðinn þrýstingur að standa undir því þjónustustigi sem þau héldu úti en við höfum mikinn metnað fyrir því. Pipar og Salt á stóran, tryggan hóp viðskiptavina og ómetanlegt hvað fólk hefur fylgt þessari búð. Þess vegna verður ótrúlega gaman að geta boðið fólki að koma í „gömlu búðina“ og hitta fyrrum eigendur. Þau hlakka líka mikið til að taka vel á móti sínum viðskiptavinum, bæði gömlum og nýjum. Það verður passað upp á sóttvarnir, grímur á staðnum og gott pláss og vonum að fólk sjái sér fært um að kíkja til okkar.“ Anna Kristín segir kjörið tækifæri á laugardaginn til þess að kaupa fallegar jólagjafir í versluninni. Þær Margrét leggi áherslu á textílvöru, trévörur og gólfmottur. „Við vorum einmitt að hlaða inn á vefsíðuna nýjum vörum. Við erum alltaf með sænsku vínylmotturnar sem njóta mikilla vinsælda. Þær eru frábærar bæði inni og úti og má þvo í þvottavél. Þær eru stamar á gólfi, gefa góða dempun, halda sér vel og svo má snúa þeim við auk þess sem þær eru fallegar og margar skemmitlega skrautlegar. Þá eigum við afar fallega textílvöru, viskustykki og löbera frá Finnlandi, sem eru mjög vönduð og endingargóð. Við eigum svo alltaf gott úrval af handgerðum trévörum frá Svíþjóð og Finnlandi sem eru sérstaklega fallegar fyrir jól og páska. Við viljum halda þessari sérstöðu og leggjum okkur líka fram um að bjóða gæða vörur á sanngjörnu verði. Hægt er að fylgjast með breytilegu vöruframboði okkar og viðburðum á vefsíðu okkar, Facebook og Instagram. Hlökkum til að sjá sem flesta á laugardaginn.
Verslun Hús og heimili Tíska og hönnun Matur Mest lesið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Isiah Whitlock Jr. látinn Lífið Egill Ólafs og Gísli Marteinn sprækir á annan í jólum Menning Móðurmorð í blóðugu jólaboði Gagnrýni Heitustu lögin á FM árið 2025 Tónlist Jólaboð Evu: Kalkúnabringur með öllu tilheyrandi Matur Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Lífið Clooney orðinn franskur Lífið Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Lífið Sautján ára Glúmur leigði bíl og leitaði Bardot á frönsku rivíerunni Lífið Fleiri fréttir Hvað veldur rafmögnuðu hári og hvernig má losna við það? Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Mikils virði að gefa fólki frelsi til að velja Fjölbreyttir jólasmáréttir frá Kjarnafæði Snéru upp á klassískt jólalag Jólaundirbúningurinn byrjar í KiDS Coolshop Augnablikin sem urðu að minni þjóðar Setningar sem eiga skilið innrömmun Konráð kveður á mildan hátt Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Sjá meira