Innlent

Ætla aftur í Borgar­nes að skoða at­kvæðin betur

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Birgir Ármannsson er formaður undirbúningskjörbréfanefndar.
Birgir Ármannsson er formaður undirbúningskjörbréfanefndar. vísir/sigurjón

Undirbúningskjörbréfanefnd ætlar aftur í vettvangsferð í Borgarnes, helst strax í þessari viku, til að fara aftur yfir frágang kjörgagna. Formaður nefndarinnar vill ekki gera grein fyrir því hvaða atriði þurfi að skoða nánar.

Nefndin hefur fundað yfir tuttugu sinnum á þeim sex vikum sem liðnar eru frá kosningum.

Við vettvangsferð sem farin var í Borgarnes fyrir þremur vikum kom í ljós við yfirferð bunka auðra atkvæða að þar leyndist atkvæði sem hefði átt að teljast gilt og tilheyra Framsóknarflokknum.

Nú vill nefndin fara aftur í slíka ferð til að skoða kjörgögnin enn betur.

Óljóst hvað eigi að skoða

„Við höfum gert þetta tvisvar áður og þurfum að staðfesta ákveðna hluti sem við erum að velta fyrir okkur,“ segir Birgir.

Hvaða hlutir eru það?

„Nei, við erum svo sem ekkert að fara nánar út í það sko. Við erum hins vegar bara í því að vera að velta fyrir okkur ýmsum öngum á þessu máli og það að fara í Borgarnes einu sinni í viðbót, það er bara partur af því.“

Heimildir fréttastofu herma að þar sé sérstaklega verið að horfa til flokkunar atkvæða og hvernig henni var háttað.

Undirbúningsnefnd hefur fundað rúmlega tuttugu sinnum vegna endurtalningarinnar í Norðvesturkjördæmi.vísir/vilhelm

Þar sé mögulega til skoðunar að skoða aftur alla bunka og sjá hvort fleiri bunkar innihaldi atkvæði sem eiga heima annars staðar.

Birgir vill ekki staðfesta þetta.

„Ég ætla ekkert að fara nánar út í það. Ég meina, þegar við erum búin að tékka af þessa hluti þá munum við gera fundargerð sem verður síðan birt, eins og við höfum gert í fyrri tilvikum,“ segir hann.

Tímapressa á nefndinni

Forsætisráðherra hefur gefið það út að stjórnarsáttmáli áframhaldandi ríkisstjórnar muni ekki vera kynntur fyrr en vafa um mögulega uppkosningu hefur verið eytt.

Það veltur því á nefndinni hvenær ný ríkisstjórn verður mynduð og þing kallað saman á ný.

„Við auðvitað gerum okkur grein fyrir því að verkefni okkar er þess eðlis að því þarf að ljúka eins fljótt og hægt er en á hinn bóginn er mikilvægt fyrir okkur líka að vanda til verka þannig að við viljum ekki skilja eftir einhverja lausa enda þar sem við getum hugsanlega hnýtt þá,“ segir Birgir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×