Erlent

Þúsundir mót­mæla að­gerða­leysi á COP26

Þorgils Jónsson skrifar
Aðgerðarsinnar og fleiri sem láta sér loftslagsmál varða mættu í þúsundatali á götur Glasgow í dag til að mótmæla aðgerðaleysi ráðamanna á COP26, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fer fram þar í borg.
Aðgerðarsinnar og fleiri sem láta sér loftslagsmál varða mættu í þúsundatali á götur Glasgow í dag til að mótmæla aðgerðaleysi ráðamanna á COP26, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fer fram þar í borg. Mynd/AP

Þúsundir mótmælenda gengu fylktu liði um götur Glasgow í dag til að krefjast sterkari aðgerða í loftslagsmálum, en Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP26, fer fram þar í borg þessa dagana.

Í frétt Reuters segir að hópurinn hafi samanstaðið af stúdentum, aðgerðasinnum og almennum borgurum sem láta sig loftslagsmál varða. Þau hafi ekki látið kuldann á sig fá þar sem þau gengu frá Kelvingrove Park niður að George Square, sumir hrópandi slagorð gegn kapítalisma og stórfyrirtækjum, en aðrir til stuðnings loftslagsréttlæti og bændum sem eiga um sárt að binda.



Aðgerðasinnum finnst fulltrúar á ráðstefnunni ekki hafa náð merkjanlegum árangri, þrátt fyrir að fyrir liggi heit um að draga úr kolabrennslu, losun metangass og eyðingu frumskóga.

Baráttufólk fyrir aðgerðum í loftslagsmálum lét vel í sér heyra í Glasgow í dag.Mynd/AP

Skipulögð mótmæli fóru fram víða um heim í dag, meðal annars í London, Sviss og Suður-Afríku.

Eins og fram kom í fréttum í gær kom baráttukonan Greta Thunberg fram á öðrum mótmælum í Glasgow í gær þar sem hún sagði COP26 hafa mislukkast þar eð engar afgerandi aðgerðir hefðu verið samþykktar.

Meðal málefna sem eru til umræðu á ráðstefnunni eru áköll um að halda hlýnun jarðar í skefjum þar sem meðalhitastig fari ekki meira en 1,5 gráður upp fyrir það sem var fyrir upphaf iðnvæðingar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×