Þjálfari Keflavíkur fékk einn á kjammann frá mótherja í miðjum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2021 11:30 Jón Halldór Eðvaldsson sestur á bekkinn eftir höggið. Skjámynd/S2 Sport Það getur verið slysahætta af því að stýra körfuboltaliði á hliðarlínunni og því fékk Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur að kynnast í vikunni.
Jón Halldór stýrði Keflavík til 21 stigs sigur á Breiðabliki, 80-59, en hans stelpur hafa nú unnið fjóra leiki í röð. Jonni stóð líka af sér vænt högg á andlitið í leiknum eins og var sýnt í Subway-Körfuboltakvöldi í gær. Hin bandaríska Chelsey Moriah Shumpert í liði Breiðabliks var í baráttu um lausan bolta og endaði inn í þjálfarboxinu hans Jonna. Hún gerði meira en það því hún sveiflaði óaðvitandi annarri hendi sinni og gaf þjálfara Keflavíkurliðsins um leið einn á kjammann. Atvikið sem var alveg óvart vakti lukku hjá leikmönnum Keflavíkurliðsins á bekknum og sem betur fer varð Jonna ekki meint af þessu. Hann þurfti samt að fá sér sæti til að jafna sig aðeins. Það má sjá þetta atvik hér fyrir neðan en Körfuboltakvöldsmenn leyfðu sér að skreyta það örlítið með þekktum hljóðum. Klippa: Körfuboltakvöld: Fékk einn á kjammann
Subway-deild kvenna Keflavík ÍF Körfuboltakvöld Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira