Melo sýndi gamla takta þegar Lakers vann loksins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. október 2021 08:01 Carmelo Anthony skoraði 28 stig í sigri Los Angeles Lakers á Memphis Grizzlies. getty/Harry How Carmelo Anthony sýndi að enn lifir í gömlum glæðum þegar Los Angeles Lakers vann sinn fyrsta leik í NBA-deildinni tímabilinu í nótt. Anthony skoraði 28 stig þegar Lakers lagði Memphis Grizzlies að velli, 121-118. Hann er nú kominn upp í 9. sætið á listanum yfir stigahæstu leikmenn í sögu NBA. Anthony Davis skoraði 22 stig fyrir Lakers, LeBron James nítján og Russell Westbrook var með þrettán stig og þrettán stoðsendingar. Ja Morant skoraði fjörutíu stig og gaf tíu stoðsendingar fyrir Memphis en klikkaði á vítaskoti á ögurstundu undir lok leiks. Charlotte Hornets gerði sér lítið fyrir og vann Brooklyn Nets á útivelli, 95-111. Charlotte hefur unnið alla þrjá leiki sína til þessa og liðið hefur aldrei byrjað tímabil jafn vel. Miles Bridges skoraði 32 stig fyrir Charlotte og LaMelo Ball átján. Kevin Durant skoraði 38 stig fyrir Brooklyn en það dugði skammt. Líkt og Charlotte hefur Golden State Warriors unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu. Í nótt sigraði Golden State Sacramento Kings, 107-119, í Kaliforníuslag. Stephen Curry skoraði 27 stig fyrir Golden State og gaf tíu stoðsendingar og Jordan Poole skoraði 22 stig. Úrslitin í nótt
Anthony skoraði 28 stig þegar Lakers lagði Memphis Grizzlies að velli, 121-118. Hann er nú kominn upp í 9. sætið á listanum yfir stigahæstu leikmenn í sögu NBA. Anthony Davis skoraði 22 stig fyrir Lakers, LeBron James nítján og Russell Westbrook var með þrettán stig og þrettán stoðsendingar. Ja Morant skoraði fjörutíu stig og gaf tíu stoðsendingar fyrir Memphis en klikkaði á vítaskoti á ögurstundu undir lok leiks. Charlotte Hornets gerði sér lítið fyrir og vann Brooklyn Nets á útivelli, 95-111. Charlotte hefur unnið alla þrjá leiki sína til þessa og liðið hefur aldrei byrjað tímabil jafn vel. Miles Bridges skoraði 32 stig fyrir Charlotte og LaMelo Ball átján. Kevin Durant skoraði 38 stig fyrir Brooklyn en það dugði skammt. Líkt og Charlotte hefur Golden State Warriors unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu. Í nótt sigraði Golden State Sacramento Kings, 107-119, í Kaliforníuslag. Stephen Curry skoraði 27 stig fyrir Golden State og gaf tíu stoðsendingar og Jordan Poole skoraði 22 stig. Úrslitin í nótt LA Lakers 121-118 Memphis Brooklyn 95-111 Charlotte Sacramento 107-119 Golden State NY Knicks 104-110 Orlando Houston 97-107 Boston Oklahoma 103-115 Philadelphia NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
LA Lakers 121-118 Memphis Brooklyn 95-111 Charlotte Sacramento 107-119 Golden State NY Knicks 104-110 Orlando Houston 97-107 Boston Oklahoma 103-115 Philadelphia
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
NBA Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira