Innlent

32 greindust með kórónu­veiruna í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Um 11.700 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Um 11.700 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

32 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórtán þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 44 prósent. Átján voru utan sóttkvíar, eða 56 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.

355 eru nú í einangrun vegna Covid-19, en voru 341 í gær. 855 eru nú í sóttkví, en voru 908 í gær. 507 eru nú í skimunarsóttkví.

Níu eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær. Þrír eru á gjörgæslu, líkt og í gær.

Fimm greindust smitaðir á landamærunum – fjórir með virkt smit í fyrri skimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki eins.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 115,1, en var 114,3 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 6,5, en var 5,5 í gær.

Alls hafa 11.760 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 33 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Tekin voru 1.125 einkennasýni í gær, 1.958 sýni á landsmærum og þá greindust 618 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×