Skoðun

Fjár­sveltar rann­sóknir á efna­hags­brotum

Oddný G. Harðardóttir skrifar

Á síðustu árum hafa komið upp nokkur stór mál þar sem rökstuddur grunur leikur á um stórfelld efnahagsbrot. Það er mikið áhyggjuefni hversu lengi þessi mál eru til meðferðar hjá yfirvöldum.

Á síðasta kjörtímabili veikti ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vg afar mikilvægar eftirlitsstofnanir í íslensku samfélagi, með skipulegum hætti og gróf þannig undan heilbrigðum viðskiptaháttum. Á þessu vöktum við í Samfylkingunni þráfaldlega athygli. Óþarfi ætti að vera að benda á að það veikir samkeppnisstöðu þegar eftirlit er vanfjármagnað og ekki fast tekið á efnahagsbrotum. Það kemur niður á þeim sem fylgja reglum og stunda heiðarlega viðskiptahætti.

Í júní 2019 voru samþykkt á Alþingi lög sem veikja Fjármálaeftirlitið. Vorið 2020 var Samkeppniseftirlitið veikt með lagasetningu og svo voru tennurnar dregnar úr skattrannsóknum með því að leggja niður embætti Skattrannsóknarstjóra. Í umfjöllun Kveiks í febrúar komu fram áhyggjur af skorti á mannskap hjá Héraðssaksóknara til að rannsaka mál sem koma inn á borð hans, m.a. Samherjamálið.

Í umræðum um fjármögnun eftirlitsaðila vegna Samherjaskjalanna hélt fjármálaráðherra því ítrekað fram að eftirlitsstofnanir væru ekki undirfjármagnaðar og að þær fengju fjármagn úr varasjóðum ef þörf væri talin á. En það hefur ekki verið staðið við þau orð. Ráðamenn geta stýrt rannsóknum með því að svelta embættin sem þeim sinna.

Stór mál og ekkert að frétta

Rannsókn á Samherjaskjölunum er gríðarlega stórt mál sem krefst mikillar samvinnu á milli a.m.k. þriggja landa og tekur vissulega tíma. Það vekur hins vegar furðu hversu lítið fréttist af þeirri rannsókn.

Lítið er sömuleiðis að frétta af öðrum alvarlegum málum sem hafa komið upp. Hvernig ætli til dæmis gangi að rannsaka mútugreiðslur til framkvæmdastjóra Upphafs fasteignafélags sem kom fram í mars 2020? Og hvað með svik bílaleigufyrirtækisins Procar, en það eru tvö og hálft ár síðan flett var ofan af því máli, þar sem stórfelld og skipulögð svik voru beinlínis viðurkennd á skjánum fyrir framan alþjóð í umfjöllun Kveiks.

Það er komið að almenningi

Á meðan langflestir landsmenn axla sína samfélagslegu ábyrgð af samviskusemi er fullkomlega óásættanlegt að einstakir aðilar skjóti sér undan ábyrgð og njóti forréttinda og samkeppnisforskots með svikum án afleiðinga.

Það er í almannaþágu að snúa þessu við. Samfylkingin vill að eftirlitsstofnanir verði styrktar. Við viljum efla skatteftirlit og -rannsóknir, herða viðurlög við alvarlegum brotum og leggja baráttunni lið á alþjóðlegum vettvangi. Við viljum að kennitöluflakk verði bannað eins og samtök launafólks og atvinnulífs hafa kallað eftir. Við höfum lagt til að embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins verði breytt þannig að embættinu verði veitt ákæruvald og heimild til saksóknar í þeim málum sem það rannsakar.

Áframhaldandi samstarf núverandi ríkisstjórnarflokka mun ekki skila neinum breytingum, þvert á móti mun umburðarlyndi með efnhagsbrotum áfram ríkja með tilheyrandi tjóni fyrir almenning og samkeppnisaðila.

Það er komið nóg af dekstri við sérhagsmunaöflin, nú er komið að almenningi. Höfum það í huga þegar við göngum til kosninga.

Höfundur skipar 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×