Innlent

Ekki fleiri greinst innan­lands síðan 3. septem­ber

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa um 11.500 greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi faraldursins.
Alls hafa um 11.500 greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Alls greindust 46 með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á einum degi síðan 3. september.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. 22 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 48 prósent. 24 voru utan sóttkvíar, eða 52 prósent.

Alls eru nú 336 í einangrun, en voru 309 í gær. 1.111 eru nú í sóttkví, en voru 992 í gær. 320 eru nú í skimunarsóttkví.

Níu eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær. Þá eru tveir á gjörgæslu, líkt og í gær.

Þrír greindust á landamærum í gær og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki þeirra allra.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 111,3, en var 105,5 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 6,3, líkt og í gær.

Alls hafa 11.518 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 33 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Tekin voru 1.165 einkennasýni í gær, 1.338 sýni á landsmærum og þá greindust 450 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×