Erlent

Verulega slasaðar eftir að pálmatré féll á þær á Tenerife

Kjartan Kjartansson skrifar
Toppur pálmatrés féll ofan á konurnar þar sem þær sátu við borð við veitingahús. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Toppur pálmatrés féll ofan á konurnar þar sem þær sátu við borð við veitingahús. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Getty

Tvær íslenskar konur eru verulega slasaðar á gjörgæsludeild eftir að pálmatré féll á þær og þrjár aðrar fyrir utan veitingastað á spænsku eyjunni Tenerife á sunnudag. Símum kvennanna var stolið þar sem þær lágu í sárum sínum, að sögn eiginmanns einnar þeirra.

Slysið átti sér stað í bænum San Miguel de Abona. Konurnar sátu fimm saman að snæðingi þegar toppurinn af pálmatré féll fyrirvaralaust ofan á þær.

Eiginmaður einnar þeirra sem vildi ekki koma fram undir nafni til að varðveita friðhelgi einkalífs kvennanna segir að tvær þeirra séu verulega slasaðar á gjörgæsludeild sjúkrahúss á staðnum. Ein þeirra eigi að fara í aðgerð í dag en hin á morgun. Fjölskyldur þeirra séu á leiðinni út til að vera með þeim.

Hinar þrjár konurnar séu verulega lemstraðar með áverka á hálsi og fótum, þar á meðal eiginkona hans. Þær komi heim til Íslands annað kvöld.

Þrír Íslendingar sem áttu leið hjá náðu að lyfta trénu af konunum, að sögn eiginmannsins. Þar sem konurnar lágu slasaðar segir hann að óprúttnir náungar hafi stolið símum þriggja þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×