Skoðun

Sáttmáli okkar við þjóðina

Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin þjóðarsátt er um óbreytt fiskveiðistjórnunarkerfi hér á landi. Þetta er ranglátt fyrirkomulag sem hefur gert nokkra útgerðarrisa ofurríka. Það blasir við í íslensku samfélagi að of sterk yfirráð fárra yfir fiskveiðiauðlindinni færir þeim meiri völd í þjóðfélaginu en heilbrigt getur talist og staða þeirra er of sterk gagnvart stjórnvöldum eins og dæmin sanna. Völd þeirra og áhrif geta verið skaðleg og áhrif þeirra á ákvarðanir í stjórnkerfinu og á vettvangi stjórnmála unnið gegn almannahag.

Oft er talað um að það þurfi að fara sáttarleið í sjávarútvegi. En við hverja á að gera sáttmála? Stórútgerðina eða þjóðina? Þeir sem fá nýtingarréttinn á auðlind þjóðarinnar fyrir slikk munu ekki samþykkja með sátt að láta forréttindin frá sér. Það er hitt sem skiptir máli og er áríðandi: að þjóðin verði sátt við meðferðina á sinni dýrmætu auðlind.

Í ágúst síðastliðnum var birt niðurstaða könnunar sem Gallup gerði fyrir félagið Þjóðareign. Þar var spurt um hvort fólk styddi að markaðsgjald væri greitt fyrir afnot af fiskveiðiauðlind þjóðarinnar. Niðurstaðan var sú að 77% aðspurðra voru fylgjandi því og einungis 7,1% andvígir slíkri kerfisbreytingu.

Og krafan er skýr um sterkt auðlindarákvæði í stjórnarskrá. Þar liggur heil þjóðaratkvæðagreiðsla að baki með skýra niðurstöðu.

Stefna Samfylkingarinnar

Það hefur verið stefna Samfylkingarinnar frá stofnun flokksins að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu og gera það gegnsærra og réttlátara. Að bjóða út hæfilegan hluta kvótans ár hvert, fá fullt verð fyrir auðlindina og gefa möguleika á nýliðun. Á meðan slíkt er undirbúið ætti strax að hækka veiðigjöld á 20 stærstu útgerðirnar sem fara með 70% kvótans. Um leið þarf að skýra lagagreinar sem eiga að vinna gegn samþjöppun og að þeir stóru verði stærri og þeir geti farið í kringum lögin.

Núverandi fyrirkomulag á úthlutunum aflaheimilda er lokað kerfi. Nýliðun er nánast ómöguleg og kvótinn safnast á æ færri hendur, erfist og helst innan fjölskyldna.

Stórútgerðirnar mala gull, verða alltof valdamiklar í samfélaginu og teygja arma sína of víða í viðskiptalífinu með fjárfestingum utan greinarinnar. Þjóðin fær ekki réttlátan hlut í arðinum. Auðurinn verður óheilbrigt afl í samfélaginu.

Við þetta bætist að eftirlit með umgengni um fiskveiðiauðlindina er veikburða. Heimildir Fiskistofu eru ekki nægar og lögin eru óskýr og gölluð. Ekkert jafnræði er á milli þeirra sem treysta á fiskmarkaði til að kaupa fisk til vinnslu og hinna sem stunda bæði veiðar og vinnslu. Allt of lítill hluti afla sem veiddur er fer á fiskmarkaði. Sjómenn sjá erlendar útgerðir selja afla sinn á hærra verði en þær íslensku.

Pólitískur vilji er það eina sem þarf til að breyta kerfinu og fara að vilja meirihluta þjóðarinnar

Við í Samfylkingunni ætlum að breyta kerfinu og efla eftirlit og heimildir Fiskistofu, vinna gegn samþjöppun, stuðla að nýliðun í greininni og hámarka arð þjóðarinnar af auðlindinni.

Það er komið nóg af rótgrónu dekri við sérhagsmunaöflin. Það er komið að almenningi.

Kjósum Samfylkinguna jafnaðarmannaflokk Íslands 25. september!

Höfundur skipar 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×