Skoðun

Græn um­hverfis­væn fram­tíð í Hafnar­firði

Ó. Ingi Tómasson skrifar

Græn sýn okkar í Hafnarfirði endurspeglast m.a. í aðalskipulagi Hafnarfjarðar, Umhverfis- og auðlindastefnu og heilsustefnu. Græn sýn er grunntónn í heilstæðri stefnumótun Hafnarfjarðarbæjar sem leitast við að vera í fararbroddi í sjálfbærni og umhverfismálum með því m.a. að stuðla að minni losun gróðurhúslofttegunda.

Skipulag og stefnur

Aðalskipulag Hafnarfjarðar leggur áherlsu á að þróun byggðar taki mið af sérkennum bæjarins, að greiður aðgangur sé að ósnortinni náttúru og náttúrfegurð. Þá er nálægð við náttúruperlur ómetanleg hvort sem er innanbæjar og í upplandinu og mikilvægt er að góð tengsl séu við horfna menningu og sögustaði. Umhverfis- og auðlindastefna sem var samþykkt í bæjarstjórn 2018 hefur það að markmiði að tryggja öllum íbúum Hafnarfjarðar heilnæmt og öruggt umhverfi til lífs, leiks og starfa. Að mengun sé í lágmarki og umhverfisvöktun virk. Að dregið sé verulega úr myndun úrgangs með ábyrgum innkaupum, neyslu og aukinni endurvinnslu. Að almenningssamgöngur séu efldar og hlutur hjólandi og gangandi bættur. Að umhverfisfræðsla verði til fyrirmyndar og aðgengi að upplýsingum handhægt og þær auðnýttar. Að það skuli taka tillit til hennar í allri starfsemi sveitarfélagsins. Trjáræktarstefna Hafnarfjarðar undirstrikar mikilvægi þess að gróður dragi úr svifryki sem bindur kolefni og eykur loftgæði í þéttbýli. Með heilsustefnu ásetur bærinn sér að stuðla að aukinni véllíðan íbúa með heilsueflandi aðgerðum til frambúðar.

Vistvæn byggð

Í maí 2019 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar tillögur að aðgerðum sem hvetja eiga húsbyggjendur til að setja umhverfið í forgang í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Þar voru samþykktar tillögur að aðgerðum um sjálfbæra þróun, auknar kröfur um minni losun gróðurhúsalofttegunda og aukna umhverfisvitund almennings. Meginmarkmið samþykktarinnar er að stuðla að aukinni sjálfbærni í skipulags- og byggingarmálum í sveitarfélaginu og gera Hafnarfjörð að aðlaðandi stað til að byggja vistvænt. Samþykktin fól m.a. í sér skilyrði um djúpgáma á nýbyggingarsvæðum, kröfu um endurvinnslu úrgangs á framkvæmdastað, að a.m.k. 20% byggingarefna í nýframkvæmdum eiga að hafa umhverfisvottun, að bærinn gerist aðili að Grænni byggð, að bærinn sýni fordæmi og móti stefnu um vottun allra nýbygginga á vegum sveitarfélagsins. Síðast en ekki síst að gefin verði 20% afsláttur af lóðaverði gegn Svansvottun eða sambærilegu og 20-30% afsláttur af lóðaverði gegn BREEAM vottun í takti við einkunnargjöf. Hafnarfjörður er í farabroddi sveitarfélaga með hvata í formi afslátta á lóðaverði á umhverfisvænum byggingum. Sem dæmi um afslátt vegna vottunar þá lækkar lóðaverð á íbúð í fjölbýli um 800þ – 1,2m. og á einbýli um 2,8m – 4,2m.

Nokkur önnur umhverfisvæn verkefni

Hafnarfjörður var fyrst sveitarfélaga að semja við Kolvið um kolefnisjöfnuð, við drögum markvist úr matarsóun í skólum og á vinnustöðum bæjarins, verkefni um endurheimt votlendis í Krýsuvík lauk haustið 2019. Svansvottuð ræsting þar sem vax er notað í stað bóns, en hér er um frumkvöðlastarf að ræða. Snyrtileikinn – viðurkenningar til íbúa og fyrirtækja fyrir fegrun bæjarins. Hafnarfjarðarbær setur umhverfismálin í forgang.

Höfundur er bæjarfulltrúi (D) og formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×