Erlent

Innflutningur á ivermectin tífaldast í Ástralíu og fleiri neita að svara um notkun þess

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Yfirvöld víða umheim hafa varað við notkun ivermectin, bæði vegna þess að ekki hefur verið sýnt frá á virkni lyfsins gegn Covid-19 og vegna þess að það getur hreinlega verið hættulegt.
Yfirvöld víða umheim hafa varað við notkun ivermectin, bæði vegna þess að ekki hefur verið sýnt frá á virkni lyfsins gegn Covid-19 og vegna þess að það getur hreinlega verið hættulegt. Getty/NurPhoto/Soumyabrata Roy

Sífellt fleiri viðskiptavinir neita að upplýsa lyfjafræðinga um það við hverju þeir fengu ávísað lyfjum sem innihalda ivermectin. Þetta segja samtök ástralskra lyfjafræðinga, sem hafa ráðlagt félögum sínum að fylgjast grannt með sölu ivermectin.

Ivermectin er eitt umdeilasta lyfið í Covid-umræðunni. Deilur um ágæti lyfsins hófust þegar vísindamenn við Monash University í Melbourne greindu frá því að þeim hefði tekist að útrýma SARS-CoV-2 í frumum á aðeins 48 klukkustundum með því að nota ivermectin.

Hinar góðu fréttir fóru á flug og hafa orðið til þess að fjöldi fólks telur lyfið virka gegn Covid-19 en því sé haldið frá almenningi af ýmsum skuggalegum ástæðum. Vísindamennirnir sem stóðu að rannsókninni, og aðrir, hafa hins vegar bent á að um hafi verið að ræða tilraun á vísindastofu en ekki skipulagða rannsókn á öryggi og virkni lyfsins í mönnum.

Lyfjastofnun Ástralíu segir innflutning á lyfinu hafa tífaldast og þá hafi myndast skortur á lyfinu Stromectol, sem inniheldur ivermectin, í ágúst. Stromectol er notað við meðferð á ýmsum sníkjudýrum sem herja á menn en borið hefur á því að einstaklingar hafi gripið til þess að nota ivermectin-lyf ætluð hestum til að freista þess að læknast af Covid-19.

Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur raunar séð sig tilneydda til að minna Bandaríkjamenn á að þeir séu ekki hross.

Monash University hefur einnig biðlað til fólks um að reyna ekki að lækna sjálft sig með ivermectin né nota ivermectin sem ætlað er dýrum. Rannsóknir háskólans á lyfinu standa enn yfir en hafa staðið í stað vegna fárra Covid-tilvika í Ástralíu.

Greint hefur verið frá því að fjöldi einstaklinga ræði nú saman á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum um það hvernig komast má yfir ivermectin og deili jafnvel upplýsingum um lækna sem eru reiðubúnir til að ávísa lyfinu.

Því hafa samtök lyfjarfræðinga í Ástralíu, sem telja 18 þúsund félaga, beint því til lyfjafræðinga að vera á varðbergi þegar fólk mætir með lyfseðil fyrir ivermectin og hafa samband við lækninn sem ávísaði lyfinu ef viðskiptavinurinn getur ekki gefið greinargóða útskýringu á notkuninni.


Tengdar fréttir

Grunur um al­var­legar auka­verkanir: Vara við inn­töku húð­krems gegn Co­vid-19

Lyfjastofnun og embætti landlæknis vilja árétta að lyfið Soolantra (ivermektín) er einungis notað til útvortis notkunar á húð, en ekki til inntöku. Stofnanirnar hafa áreiðanlegar upplýsingar um að sjúklingar með COVID-19 hafi tekið lyfið um munn og rökstuddan grun um að það hafi haft alvarlegar aukaverkanir í för með sér.

Lyfja­stofnun geti ekki mælt með notkun sníkju­dýra­lyfs gegn Co­vid

Lyfjastofnun hefur fengið upplýsingar um notkun sníkjudýralyfsins Ivermectin við Covid hér á landi. Stofnunin mælir ekki með notkun lyfsins, sem ekki hefur verið sýnt fram á að sýni nokkra virkni gegn Covid-19, hvorki sem fyrirbyggjandi lyf né í meðferð sjúklinga.

Hyggjast rannsaka áhrif Ivermectin gegn Covid-19

Rannsakendur við Oxford-háskóla hyggjast gefa einstaklingum eldri en 50 ára með einkenni Covid-19 lyfið Ivermectin til að kanna hvort notkun þess sporni gegn sjúkrahúsinnlögnum af völdum sjúkdómsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×