Tilkynning um vopnaðan mann í íbúðarhúsi á Egilsstöðum barst lögreglu á Austurlandi um tíuleytið í gærkvöldi. Lögregla hefur varist allra frétta en hefur lýst atburðarásinni þannig að maðurinn hafi haft uppi hótanir um að beita vopninu.
Hann hafi þá verið í íbúðarhúsi við Dalsel í útjaðri Egilsstaða og þaðan heyrst skothvellir. Ekki hafi þá verið vitað hvort aðrir væru í húsinu. Eftir um klukkustund hafi maðurinn komið vopnaður út og skotið að lögreglu – sem þá hafi skotið hann. Hann var svo fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Skot mannsins hæfðu að minnsta kosti tvö hús og greinilega má sjá för eftir byssukúlurnar á öðru þeirra.
Ætlaði að ræða við barnsföður kærustu sinnar
Samkvæmt heimildum fréttastofu hugðist maðurinn eiga samskipti við barnsföður kærustu sinnar sem býr í götunni. Börn þeirra hafi verið í húsinu þegar manninn bar að garði í gærkvöldi, samkvæmt heimildum fréttastofu.
Þá herma heimildir fréttastofu einnig að maðurinn sé á fimmtugsaldri og búsettur í Múlaþingi. Tæknideild lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, auk liðs frá embætti héraðssaksóknara, var send austur strax í gærkvöldi til að rannsaka málið.
„Ég þorði ekki heim til mín“
Íbúar á Egilsstöðum eru mjög slegnir eftir atburðina og sóttu sér margir hverjir áfallahjálp eftir atburði gærkvöldsins. Áfallamiðstöð var opnuð síðdegis á Egilsstöðum í dag þar sem fólki var boðið að leita hjálpar.

„Ég er hérna bara fjórum kílómetrum í burtu úti í hesthúsi og ég heyri skothvellina. En við kipptum okkur ekkert sérstaklega upp við það þá en fæ svo sms frá 112 um að halda mig innandyra þar sem það væri maður með byssu í íbúðahverfi og það væri í rauninni ekkert meira sagt þannig að ég bara þorði ekki heim til mín,“ segir Brynja Rut Borgarsdóttir, íbúi í Dalseli.
„En bíð bara í bílnum úti í hesthúsi og bíð bara eftir að það komi á fréttamiðlana en næ síðan ekki á manninn minn heima sem er með tveggja ára gamlan son okkar og jújú, ég hélt hann væri sofandi var ekkert að hringja sendi bara skilaboð. Síðan þegar það kemur fram að þetta sé í Dalseli þá var mér ekkert alveg sama þannig að ég fór að hringja eins og brjálæðingur í hann en fékk engin svör þannig að ég bara beið þangað til ég gat farið heim eða mér fannst ég geta farið af stað heim,“ segir Brynja.
Eitthvað sem fólk á ekki von á
Sveitarstjóri Múlaþings segist hafa hrokkið við þegar hann heyrði af atvikinu. Hann hvetur fólk til að nýta sér þá hjálp sem því stendur til boða.

„Ég held að mér hafi bara orðið við eins og öllum öðrum íbúum, að maður bara hrökk við. Þetta er eitthvað sem að við bara eigum ekki von á hér í okkar samfélagi, alveg sama hvar við erum á landinu,“ segir Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings.
„Þannig að fólk hefur verið slegið og það á við um mig og alla aðra en það sem við leggjum áherslu á og erum þess vegna að boða fólk í áfallamiðstöð. Að koma ef það finnur fyrir einhverju, vera ekki að bíða með það heima. Nýtið ykkur þetta, komið á staðinn og talið við okkar fólk.“