Lífið

Dóra hefur fundið ástina á ný

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Dóra Jóhannsdóttir stofnandi Improv-skólans.
Dóra Jóhannsdóttir stofnandi Improv-skólans. @dorajohanns

Leikkonan og handritshöfundurinn Dóra Jóhannsdóttir og Egill Egilsson flugmaður eru nýtt par. 

Þau tilkynntu formlega um sambandið á samfélagsmiðlum og hefur hamingjuóskum rignt yfir þau. Bæði eiga þau börn úr fyrri samböndum.

Dóra á son með Jörundi Ragnarssyni leikara. Þau kynntust fyrst í leiklistarnáminu en skildu fyrir sjö árum síðan og hafa áfram verið góðir vinir. Dóra opnaði sig á síðasta ári um baráttu við alkóhólisma en hún fagnaði árs edrúafmæli í febrúar á þessu ári. 

„Ég þurfti mikla hjálp, sem ég blessunarlega fékk, og ég er óendanlega þakklát öllu fólkinu sem hefur hjálpað mér og staðið við bakið á mér í þessu bataferli,“ sagði Dóra við það tilefni.

Egill er liðtækur tenniskappi og verður fróðlegt að sjá hvort hann reyni að kenna spúsu sinni handtökin í þeirri göfugu íþrótt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.