Innlent

Kristján segir sig frá krabba­meins­skimunum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Kristján Oddsson er hættur hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana.
Kristján Oddsson er hættur hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Vísir/Friðrik

Kristján Oddsson, svæðisstjóri Heilsugæslunnar Hamraborgar, hefur sagt sig frá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, sem hann hefur stýrt frá miðju síðasta ári. Samhæfingarstöðin sá meðal annars um skimanir fyrir leghálskrabbameini eftir að þær voru færðar frá Krabbameinsfélagi Íslands til Heilsugæslunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar segir að Kristján hafi sagt sig frá verkefninu og hann muni einbeita sér að starfinu við Heilsugæsluna Hamraborg, auk þess sem honum er þakkað fyrir sitt framlag til verkefnisins.

Ágúst Ingi Ágústsson kvensjúkdómalæknir hefur verið ráðinn yfirlæknir og nýr forstöðumaður Samhæfingarstöðvarinnar til hálfs árs. Hann var áður yfirlæknir og sviðsstjóri leitarsviðs Krabbameinsfélagsins.

„Brýnasta verkefni næstu mánaða er að ljúka gerð nýs tölvukerfis sem heldur utan um skimanirnar, samkvæmt þeim leiðbeiningum sem í gildi eru, og kemur niðurstöðum með sjálfvirkum hætti í www.heilsuvera.is. Embætti landlæknis leiðir þá vinnu sem lýkur vonandi á haustmánuðum og mun flýta verulega fyrir skráningu og meðferð sýna,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að Heilsugæslan, Landspítalinn og Heilbrigðisráðuneytið undirbúi nú hvernig best verði að því staðið að öll sýni verði rannsökuð á spítalanum og hvenær það getur orðið, að uppfylltum skilyrðum embættis Landlæknis.

Óhætt er að segja að málefni skimana fyrir leghálskrabbameini hafi verið nokkuð umdeild frá því um áramótin, þegar skimanirnar voru fluttar frá Krabbameinsfélaginu til Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrr í sumar var greint frá því að yfir tuttugu konur hefðu kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna stöðu skimana hér á landi, þar sem bið eftir niðurstöðu var þrír mánuðir.


Tengdar fréttir

Heilsugæslan segist ekki „henda“ sýnum

Forsvarsmenn Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu segjast ekki „henda“ sýnum sem berast Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef heilsugæslunnar.

Með frumubreytingar og einkenni en sýninu engu að síður hent

Kona sem greindist með frumubreytingar í leghálsi í júní í fyrra og hefur verið með dæmigerð einkenni leghálskrabbameins fær sýnið sitt ekki rannsakað. Ákvörðun þess efnis var tekin af Kristjáni Oddssyni, yfirmanni Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×