Birkir Bjarna áfram í bláu er hann heldur til Tyrklands Hjörtur Leó Guðjónsson og Runólfur Trausti Þórhallsson skrifa 13. ágúst 2021 07:00 Birkir Bjarnason er búinn að finna sér lið í tyrknesku deildinni. Vísir/Vilhelm Birkir Bjarnason, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, hefur samið til tveggja ára við Adana Demirspor í Tyrklandi. Liðið leikur í efstu deild eftir að hafa unnið B-deildina á síðustu leiktíð. Fyrsti leikur tímabilsins er núna á sunnudaginn gegn stórliði Fenerbahçe.
Á ferli sínum hefur Birkir spilað á Englandi með Aston Villa, með Basel í Sviss, Standard Liége í Belgíu, á Ítalíu með Sampdoria, Pescara og nú síðast Brescia ásamt því að stoppa stutt við hjá þáverandi Íslendinga nýlendu Al Arabi í Katar. Þessi öflugi miðjumaður lék nú síðast með Brescia í B-deildinni á Ítalíu og var talið að hann yrði þar áfram. Mikill áhugi var á kappanum frá ítölskum liðum en hann hefur ákveðið að söðla um og halda til Tyrklands í enn eitt ævintýrið. Birkir hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár og átt stóran þátt í velgengni Íslands. Honum vantar aðeins tvo landsleiki í hundraðið en hann hefur spilað 98 leiki fyrir A-landslið Íslands og skorað í þeim 14 mörk, þar af tvö á Evrópumótinu í Frakklandi sumarið 2016. Ljóst er að Birkir kann vel við sig í bláu en Brescia líkt og íslenska landsliðið leikur í bláum búningu. Sömu sögu er að segja af Adana Demirspor. Kulübümüz son olarak Brescia formas giyen zlanda Milli Tak m oyuncusu 33 ya ndaki Birkir Bjarnason ile 2 y ll k sözle me imzalam t r. Ho geldin #Bjarnason! pic.twitter.com/k8JhvXDwv5— Adana Demirspor (@AdsKulubu) August 12, 2021 Demirspor eru nýliðar í tyrknesku úrvalsdeildinni og á Birkir eflaust að hjálpa þeim að þétta miðsvæðið á tímabilinu sem gæti reynst nokkuð strembið. Liðið hefur verið duglegt að sækja leikmenn í sumar og má þar helst nefna hinn skrautlega Mario Balotelli.
Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Rúnar Páll kynnti teymið sitt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sjá meira