Áfall fyrir Fylki: Bryndís Arna viðbeinsbrotin og frá út tímabilið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 9. ágúst 2021 14:00 Bryndís Arna hefur leikið sinn síðasta leik á tímabilinu. Vísir/Bára Dröfn Fylkir rær lífróður í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu og gat því vart fengið verri fregnir en þær að aðalmarkaskorari liðsins, Bryndís Arna Níelsdóttir, hafi viðbeinsbrotnað og verði ekki meira með liðinu á leiktíðinni. Þetta kemur fram á Fótbolta.net en Bryndís Arna var í stuttu viðtali þar og fór yfir stöðu mála. Þar staðfesti hún að viðbeinið hefði brotnað í 2-1 sigri Fylkis á Keflavík í síðustu umferð. Fór það svo að Bryndís Arna skoraði bæði mörkin og tryggði Fylki lífsnauðsynlegan sigur. Var hún valin leikmaður umferðarinnar hjá Heimavellinum í kjölfarið. „Bryndís Arna virðist vera komin í gang en hún skoraði bæði mörk Fylkis í kvöld í eins marks sigri. Bryndís yfirgaf völlinn þó sár kvalin en hún virðist hafa lent illa á öxlinni undir lok leiks. Vonandi fyrir Fylkiskonur þá verður hún ekki lengi frá leikvellinum,“ segir í leikskýrslu Vísis um sigurinn. Nú er ljóst að sóknarmaðurinn knái verður ekki meira með í sumar. „Það er bara hvíld og recovery framundan. Það tekur allavegana sex vikur að gróa og svo er það að koma sér aftur í gang. Leikmaður Keflavíkur steig einhvern veginn fyrir mig og ég dett bara beint á viðbeinið,“ sagði Bryndís Arna við Fótbolta.net um meiðslin. Sigur Fylkis á Keflavík lyfti liðinu upp úr fallsæti í fyrsta skipti í langan tíma. Liðið er með 12 stig, eini stigi meira en Tindastóll og tveimur meira en Keflavík þegar fimm umferðir eru eftir af deildinni. Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna Fylkir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira
Þetta kemur fram á Fótbolta.net en Bryndís Arna var í stuttu viðtali þar og fór yfir stöðu mála. Þar staðfesti hún að viðbeinið hefði brotnað í 2-1 sigri Fylkis á Keflavík í síðustu umferð. Fór það svo að Bryndís Arna skoraði bæði mörkin og tryggði Fylki lífsnauðsynlegan sigur. Var hún valin leikmaður umferðarinnar hjá Heimavellinum í kjölfarið. „Bryndís Arna virðist vera komin í gang en hún skoraði bæði mörk Fylkis í kvöld í eins marks sigri. Bryndís yfirgaf völlinn þó sár kvalin en hún virðist hafa lent illa á öxlinni undir lok leiks. Vonandi fyrir Fylkiskonur þá verður hún ekki lengi frá leikvellinum,“ segir í leikskýrslu Vísis um sigurinn. Nú er ljóst að sóknarmaðurinn knái verður ekki meira með í sumar. „Það er bara hvíld og recovery framundan. Það tekur allavegana sex vikur að gróa og svo er það að koma sér aftur í gang. Leikmaður Keflavíkur steig einhvern veginn fyrir mig og ég dett bara beint á viðbeinið,“ sagði Bryndís Arna við Fótbolta.net um meiðslin. Sigur Fylkis á Keflavík lyfti liðinu upp úr fallsæti í fyrsta skipti í langan tíma. Liðið er með 12 stig, eini stigi meira en Tindastóll og tveimur meira en Keflavík þegar fimm umferðir eru eftir af deildinni. Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna Fylkir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira