Skoðun

Konur þurfa bara að vera duglegar að vara sig!

Jóna Guðbjörg Torfadóttir skrifar

Konur þurfa að vara sig utandyra. Fríða Ísberg lýsir þessu býsna vel í smásögu sinni Heim. Þar segir frá því hvað fer í gegnum huga konu sem ákveður að ganga heim af barnum um miðja nótt, því það tekur því ekki að taka leigubíl þennan stutta spöl. Allan tímann er henni mjög órótt; með lyklakippuna þrædda um fingurna og stillt á neyðarnúmerið í símanum er hún viðbúin hinu versta. Þessi lýsing á upplifun konunnar er afar raunsæ og má ætla að margar konur eigi auðvelt með að samsama sig henni.

Konur þurfa að vara sig innandyra. Tölfræðin sýnir að þar fari flestar nauðganir fram. Oftar en ekki þekkir konan nauðgarann, hann er jafnvel vinur eða kunningi. Samtals voru 189 mál tilkynnt lögreglu á árunum 2008-2009 og reyndust 40% brotaþola vera undir 18 ára aldri og allt niður í þriggja ára. Af þessum 189 nauðgunum voru 22 hópnauðganir þar sem tveir til fjórir gerendur nauðguðu konunni hver á eftir öðrum eða samtímis. 189 mál á tveimur árum þýða um ein til tvær nauðganir á viku. Það má hins vegar telja víst að þær séu fleiri; að einungis lítill hluti þeirra sé tilkynntur og enn færri eru leidd til lykta enda er réttarstaða brotaþola í ólestri.

Konur þurfa að vara sig á samfélagsmiðlum. Það hefur tíðkast um aldir að bera ekki tilfinningar sínar á torg heldur hitt, að bera harm sinn í hljóði. Þannig hefur ofbeldið fengið að viðgangast, hljóðalaust. Nú þegar konur eru farnar að stíga fram hriktir í feðraveldinu og reynt er með öllum tiltækum ráðum að þagga þær niður. Hún er gamalkunnugt ráð, þöggunin. Til þess arna er hreinlega beitt andlegu ofbeldi, smættandi orð og jafnvel hótanir eru notaðar til þess að kveða konur í kútinn. Hins vegar er slegin skjaldborg utan um gerandann og virðist þá litlu skipta þó að þolendur hlaupi á tugum.

Niðurstaðan er nokkurn veginn þessi: Konur þurfa að varast menn, bari, tjöld, klósett, stutt pils, hús, drykki, skemmtistaði, varaliti, starfsmannapartí, húsasund, brjóstaskoru, samfélagsmiðla og þjóðhátíð. Konur þurfa bara að vera duglegar að vara sig!

Höfundur er sósíalískur femínisti.


Tengdar fréttir

Orð og kyn

Ég hef oft hrifist af ljóðum svonefnds Skerjafjarðarskálds, Kristjáns Hreinssonar. Þau geyma oftar en ekki beitta ádeilu og eru laglega ort. Kristján er maður orða og því fannst mér skjóta skökku við þegar grein hans Blindgötur og bönnuð orð birtist í Stundinni þann 10. júní síðastliðinn.




Skoðun

Sjá meira


×