Innlent

Þrír greinst með veiruna innan­lands síðan á mánu­dag

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa tæplega 6.700 greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári.
Alls hafa tæplega 6.700 greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Þrír hafa greinst með kórónuveiruna innan­lands síðustu þrjá sólarhringa – tveir á mánudag og einn í gær, miðvikudag. Þeir sem greindust á mánudag voru í sóttkví, en sá sem greindist í gær var utan sóttkvíar.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is sem er nú uppfærð einungis á mánudögum og fimmtudögum.

Í einangrun eru nú 34, en þeir voru 28 á mánudag. Í sóttkví er 67, en voru 80 á mánudag. 1.714 eru í skimunarsóttkví. Enginn er nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, en á á mánudaginn var einn á sjúkrahúsi.

Á landamærum greindust þrír á mánudag, tveir á þriðjudag og þrír á miðvikudag.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 2,7, en var 2,5 á mánudag. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 7,9, en var 6,3 á mánudag.

238.843 eru nú fullbólusettir hér á landi, 80,9 prósent íbúa sextán ára og eldri, og er bólusetning hafin hjá 25.940 til viðbótar, eða 8,7 prósent íbúa sextán ára og eldri.

6.675 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru þrjátíu látin.

Alls voru tekin 284 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 652 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 796 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×