Alfreð: Það þarf að vökva völlinn Smári Jökull Jónsson skrifar 30. júní 2021 20:51 Alfreð Jóhannsson ræddi aðstæður á Króknum í viðtali eftir leikinn í kvöld. Vísir / Bára „Svekktur að hafa ekki tekið þrjú stig en það er eins og það er, við fengum bara eitt. Vindurinn var erfiður fyrir bæði lið en ég tel að við hefðum getað fengið meira út úr þessu,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfoss eftir jafntefli gegn Tindastóli í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld. „
Svekktur að hafa ekki tekið þrjú stig en það er eins og það er, við fengum bara eitt. Vindurinn var erfiður fyrir bæði lið en ég tel að við hefðum getað fengið meira út úr þessu,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfoss eftir jafntefli gegn Tindastóli í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld. Rokið á Sauðárkróki hafði mikil áhrif á leikinn í kvöld og gerði leikmönnum erfitt fyrir að spila boltanum sín á milli. „Bæði lið eiga hrós skilið fyrir að reyna að spila, auðvitað tekur vindurinn helvíti mikið. Við áttum þrjár eða fjórar hornspyrnur í fyrri hálfleik sem vindurinn tók og þær sömuleiðis í seinni hálfleik.“ Alfreð gaf lítið uppi þegar hann var spurður hvort hann stefndi að því að styrkja liðið nú þegar félagaskiptaglugginn opnar. „Það er ekkert sem er í hendi. Við erum að skoða allt sem kemur upp á borðið, maður er tilbúinn að skoða allt,“ sagði Alfreð og kom svo með athugasemd í lok viðtalsins varðandi gervigrasið á vellinum á Sauðárkróki. „Mig langar að benda á einn punkt með gervigrasið hjá Tindastóli. Frábær aðstaða en mér finnst að menn eigi að nýta aðstæðurnar eins vel og hægt er og gera þær enn betri með því að vökva völlinn.“
UMF Selfoss Tindastóll Fótbolti Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Sjá meira