Grindavík lagði 10 Gróttumenn í lokin - Martin með tvö í Mosfellsbæ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júní 2021 21:15 Grindavík fór upp fyrir Kórdrengi í annað sæti Lengjudeildar karla í fótbolta í kvöld eftir 3-1 sigur á Gróttu. Þá voru sex mörk skoruð í Mosfellsbæ.
Kórdrengir fóru upp í annað sætið fyrr í kvöld með 1-0 sigri á Þór, en á sama tíma vann ÍBV 1-0 sigur á Fjölnismönnum sem voru í öðru sætinu fyrir umferðina. Það entist ekki nema í um klukkustund þar sem Grindavík hirti annað sætið af þeim með 3-1 sigrinum á Gróttu. Staðan var 1-1 eftir mörk frá Sigurði Hallssyni fyrir Grindavík og Pétri Theodóri Árnasyni fyrir Gróttu þegar komið var fram á 86. mínútu. Þá fékk Arnar Þór Helgason að líta rautt spjald í liði Gróttu. Grindvíkinar gengu á lagið í kjölfarið og tryggðu mörk Sigurjóns Rúnarssonar og Sigurðar Hallssonar heimamönnum 3-1 sigur. Grindavík er þá komið með 15 stig í öðru sætinu, stigi á undan Kórdrengjum í 3. sætinu. Grótta er hins vegar með átta stig í sjöunda sæti. Samtímis fór fram leikur Aftureldingar og Selfoss í Mosfellsbæ. Tvö mörk Pedro Vázquez snemma leiks komu Aftureldingu í 2-0 en Gary Martin skoraði tvö mörk fyrir gestina fyrir leikhlé, staðan 2-2. Ingvi Óskarsson kom Selfossi þá yfir á 67. mínútu áður en Kári Hlífarsson tryggði heimamönnum stig með marki á 81. mínútu. Afturelding er með sex stig í níunda sætinu en Selfoss með fimm stig sæti neðar, aðeins stigi frá Þrótti sem er í fallsæti.
Lengjudeildin UMF Grindavík Grótta Afturelding UMF Selfoss Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Golf Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Íslensku landsliðskonurnar allt í öllu í sigri Inter Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu Albert ekki meira með íslenska landsliðinu „Þetta er þorpið manns“ Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael „Við eigum að vinna þessa leiki“ Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig „Úrslitin eru vonbrigði og leikurinn vonbrigði“ „Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk“ „Láta kné fylgja kviði og keyra dálítið á þá“ Sjáðu mörk úr leik Íslands og Eistlands ásamt vítavörslu Hákons Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Byrjunarlið Íslands gegn Eistlandi: Stefán Teitur og Daníel í hjartanu - Orri fremstur Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Sjá meira