Lífið

Magnaðar myndir af nýja hrauninu í Nátt­haga

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Nátthagi er nú hálfþakinn hrauni.
Nátthagi er nú hálfþakinn hrauni. Vísir/Vilhelm

Það var mikið sjónarspil á gosstöðvunum á Reykjanesi um helgina þegar hraun rann yfir vestari varnargarðana við gosstöðarnar og út í Nátthaga. Björgunarsveitarmaður í Grindavík segir fátt annað fréttnæmt hafa átt sér stað um helgina en hann hvetur forvitna gesti til að vera vel búnir áður en þeir leggja af stað upp að eldgosinu.

„Við erum að búa okkur undir það að ferðafólki frá útlöndum fjölgi og við erum að vinna markvisst að því að laga stígana og hafa þetta sem þægilegast og öruggast,“ segir Otti Rafn Sigmarsson, meðlimur í björgunarsveitinni Þorbirni, í samtali við fréttastofu.

Hann hvetur alla til að vera vel búnir þegar þeir koma að gosstöðvunum. Úrkoma síðustu daga hafi bleytt vel upp í jarðveginum á svæðinu og hætta sé á að fólk renni til og slasi sig.

Fólk er hvatt til þess að vera vel útbúið þegar það leggur að gosstöðvunum.Vísir/RAX

Stórkostlegar myndir

„Það er gott að vera með grímur með sér en það er langmikilvægast að fólk sé í góðum skóbúnaði. Það virðist aðalmálið, að fólk sé vel græjað fyrir rigninguna. Það hefur verið mjög blautt hérna síðustu daga, fólk illa skóað og einhverjir hafa runnið til og snúið eða jafnvel brotið ökkla,“ segir Otti.

Ljósmyndarar Vísis, Vilhelm Gunnarsson og Ragnar Axelsson, voru á svæðinu um helgina og náðu stórkostlegum myndum af hraunstreyminu niður í Nátthaga og fleiru.

Hraunið var ekki minna mikilfenglegt í dagsbirtunni.Vísir/RAX

Nýja hraunið aðlagast náttúrunni sem fyrir er og breytir henni til framtíðar.Vísir/RAX
Hraunið fellur niður hlíðar og breiðir úr sér á stóru svæði.Vísir/Vilhelm
Hraunið rann niður í Nátthaga, yfir vestari varnargarðinn, á laugardag.Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Varnargarðurinn hafi staðið „ótrúlega lengi“

Hraun hóf að renna yfir vestari varnargarðinn við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall í morgun en verkfræðingur segir garðinn hafa staðið ótrúlega lengi. Verið er að skoða nýja leið til að stjórna hraunrennsli úr Nátthaga.

Hraunspýja rauf vestari varnargarðinn

Hraunspýja braut sér leið meðfram útsýnishólnum við eldstöðvarnar við Fagradalsfjall í morgun og streymdi loks yfir vestari varnargarðinn, sem reistur var í Syðri-Meradölum.

Segir gosið malla áfram líkt og síðustu vikur

Ekki hafa orðið miklar breytingar á gosinu í Fagradalsfjalli og er bæði virknin og óróinn svipuð og verið hefur síðustu daga og vikur. „Þetta mallar bara áfram.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.