Bíó og sjónvarp

Upptökur hafnar á níundu þáttaröð Klovn

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Úr áttundu þáttaröð af Klovn.
Úr áttundu þáttaröð af Klovn. Youtube

Það er staðfest að grínþættirnir Klovn eru hvergi nærri hættir. Áttunda þáttaröðin verður frumsýnd á sunnudag og kallast Okkar besta ár.

Það var leikarinn Andreas G. Hansen sem tilkynnti á Instagram að leikarahópurinn væri í tökum fyrir þáttaröð níu. TV2 staðfesti þetta svo í kjölfarið í samtali við BT.  Ekkert var þó gefið upp um það hvenær aðdáendur þáttanna geta átt von á að nýju þættirnir fari í sýningu. 

Á mynd Andreas má meðal annars sjá Casper Christensen, Miu Lyhne og Frank Hvam. Hann vill ekkert gefa upp varðandi hlutverk sitt í þáttunum en lofar að það verði fyndið. Grínþættirnir Klovn hófu göngu sína árið 2005 og hafa slegið rækilega í gegn meðal Íslendinga. Einnig hafa komið út þrjár Klovn kvikmyndir. 

Hér fyrir neðan má sjá stiklu úr áttundu þáttaröðinni en fyrsti þáttur verður sýndur um helgina. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.