Gates sagður hafa átt í ástarsambandi við verkfræðing hjá Microsoft Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. maí 2021 07:33 Gates er sagður hafa verið þekktur fyrir að daðra við undirmenn sína. epa/Gian Ehrenzeller Bill Gates sagði sig frá stjórnarstörfum hjá Microsoft árið 2020 í kjölfar þess að stjórnin réði lögmannsstofu til að rannsaka rómantískt samband hans við starfsmann fyrirtækisins.
Frá þessu greinir Wall Street Journal en á dögunum var greint frá því að Melinda Gates hefði sótt um skilnað. WSJ hefur eftir heimildarmönnum að verkfræðingur hjá Microsoft hafi greint frá því að hafa átt í kynferðislegu sambandi við Bill í einhver ár. Á meðan rannsókn stóð hafi ónafngreindir stjórnarmenn komist að þeirri niðurstöðu að það væri ekki við hæfi að Gates sæti áfram. Hann hefði því sagt sig úr stjórninni áður en rannsókn málsins lauk. Talsmaður Microsoft staðfesti í samtali við CNN Business í gærkvöldi að stjórnendur Microsoft hefðu verið upplýstir um það árið 2019 að Gates hefði leitast eftir því að hefja „náið“ samband við starfsmann fyrirtækisins árið 2000. Talsmaður Gates sagði hins vegar við WSJ að hann hefði sannarlega átt í ástarsambandi fyrir um 20 árum en það hefði endað í sátt og að ákvörðun hans um að segja sig frá stjórnarstörfum hjá Microsoft hefði aðeins verið tekin til að Gates gæti einbeitt sér að mannúðarmálum. New York Times hafði áður greint frá því að Gates hefði verið þekktur fyrir að reyna við konur sem störfuðu hjá Microsoft og góðgerðastofnun þeirra hjóna. Um þær ásakanir sagði talsmaður Gates miður að sögusagnir hefðu farið á flug í kjölfar fregna af skilnaðinum.
Bandaríkin Microsoft Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira