Erlent

Bólusetningar og fjöldaskimanir til að sporna gegn út­breiðslu ind­verska af­brigðisins

Sylvía Hall skrifar
Á þeim svæðum sem indverska afbrigðið er í mikilli útbreiðslu hefur fólk verið hvatt til þess að taka svokölluð LFD próf sem fólk getur tekið heima hjá sér, þrátt fyrir að finna ekki fyrir einkennum.
Á þeim svæðum sem indverska afbrigðið er í mikilli útbreiðslu hefur fólk verið hvatt til þess að taka svokölluð LFD próf sem fólk getur tekið heima hjá sér, þrátt fyrir að finna ekki fyrir einkennum. Getty/Anthony Devlin

Þrefalt fleiri tilfelli indverska afbrigðisins greindust undanfarna vikuna í Bretlandi samanborið við vikuna áður. Yfirvöld hafa hvatt fólk til þess að láta bólusetja sig til að sporna gegn útbreiðslu afbrigðisins og mun herinn aðstoða við fjöldaskimanir á svæðum þar sem afbrigðið er í mikilli útbreiðslu.

Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins þar sem haft er eftir Edward Argar heilbrigðisráðherra að innlögnum á sjúkrahús hafi fjölgað lítillega undanfarið, þá aðallega hjá fólki í aldurshópnum 35 til 65 ára sem enn er óbólusett.

Til stendur að slaka á sóttvarnaaðgerðum á mánudag í ljósi þess hversu vel hefur gengið að bólusetja í Bretlandi. Útbreiðsla nýja afbrigðisins veldur þó mörgum áhyggjum, þá sérstaklega sérfræðingum sem hafa hvatt fólk til þess að fara sér hægt þegar slakað verður á takmörkunum innanlands.

Almenningur bíður í röð við svokallaða bólusetningarrútu þar sem fólki býðst að fá skammt af bóluefni.Getty/Anthony Devlin

Bresku læknasamtökin hafa lýst yfir efasemdum um tilslakanir á þessum tímapunkti. Enn séu „lykilhópar“ samfélagsins óbólusettir, þ.e. yngra fólk, sem gætu enn komið af stað bylgju þrátt fyrir góðan gang í bólusetningum. Yfirvöld verði að fylgjast náið með stöðunni.

Þrátt fyrir efasemdir sérfræðinga sagði Boris Johnson forsætisráðherra í gær að núverandi tölfræði benti ekki til þess að ástæða væri til að fresta áformum um tilslakanir, en í næsta skrefi munu veitingastaðir og krár fá leyfi til þess að taka á móti gestum innandyra. Nýja afbrigðið gæti þó sett strik í reikninginn varðandi þær tilslakanir sem hafa verið boðaðar í kjölfar næstu.

„Þetta nýja afbrigði gæti raskað áformum okkar og gert okkur erfiðara fyrir í næsta skrefi í júní,“ sagði Johnson í gær. „Ég hvet alla til að fara varlega því þær ákvarðanir sem við tökum á næstu dögum munu hafa gífurleg áhrif á næstu vikur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×