Sif Atladóttir sneri aftur í byrjunarlið Kristianstad og lék allan leikinn í góðum 1-0 sigri dagsins. Sif lék ekki með liðinu á síðustu leiktíð og raunar hafði hún ekki byrjað leik í 19 mánuði.
Þessi reynslumikli miðvörður minnti heldur betur á sig og hjálpaði Kristianstad að sækja stigin þrjú í dag. Sveindís Jane Jónsdóttir var hins vegar ekki með vegna meiðsla en talið er að hún verði frá þangað til um miðjan júní mánuð.
Leikur dagsins var stál í stál og staðan markalaus í hálfleik. Amanda Edgren skoraði eina mark leiksins á 62. mínútu, staðan orðin 1-0 Kristianstad í vil og reyndust það lokatölur.
Kristianstad er því komið á topp deildarinnar – tímabundið – með 10 stig að loknum fjórum leikjum.
Sif Atladóttir er með reynslumeiri leikmönnum Íslands og alls að baki 82 A-landsleiki.