Íslandsbanki hagnaðist um 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2021 18:10 Útlán til viðskiptavina jukust um 2,3 prósent var að það að mestu vegna aukinna húsnæðislána. Vísir/Egill Íslandsbanki hagnaðist um 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2021 og arðsemi eigin fjár var 7,7 prósent. á sama fjórðungi árið 2020 tapaði bankinn 1,4 milljarði og arðsemi eigin fjár var neikvæð um þrjú prósent.
Í afkomutilkynningu Íslandsbanka er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra, að ánægjulegt sé að sjá að afkoman komi vel út og sé í takti við þróunina seinni hluta síðasta árs. Heildareignir Íslandsbanka voru 1,39 milljarðar króna í lok mars en í lok síðasta árs voru þær 1,34 milljarðar. Útlán til viðskiptavina jukust um 2,3 prósent var að það að mestu vegna aukinna húsnæðislána. Eiginfjárhlutfall bankans í lok mars var 21,9 prósent, samanborið við 23 prósent í lok síðasta árs. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar á vef Íslandsbanka. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: Það er ánægjulegt að sjá að afkoma fyrsta ársfjórðungs kemur vel út og er í takti við þá þróun sem var á seinni hluta síðasta árs. Hagnaður bankans á tímabilinu var 3,6 milljarðar sem skilar arðsemi eigin fjár upp á 7,7% og er það mikill viðsnúningur frá sama tímabili í fyrra. Vöxtur var í heildartekjum á milli ára og virðisrýrnun var mun lægri en á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Fjárfestingar undanfarinna ára í innviðum og stafrænum lausnum og aukin stafræn notkun viðskiptavina leiddu til lækkunar á kostnaðarhlutfalli bankans á milli ára. Innlán frá viðskiptavinum jukust um 2,8% og útlán til viðskiptavina jukust um 2,3% frá árslokum. Aukninguna í útlánum má aðallega rekja til áframhaldandi aukinnar eftirspurnar á húsnæðislánamarkaði en mun styttri biðtími er eftir afgreiðslu húsnæðislána en áður og mælist mikil ánægja með þjónustuna. Við finnum að eftirspurnin er líka orðin fjölbreyttari og nú býður bankinn viðskiptavinum sínum græn húsnæðislán við fjármögnun á vistvænu húsnæði á hagstæðari kjörum. Þróun stafrænna lausna á síðustu árum hefur verið hröð og tók stökk þegar þörfin var hvað mest í upphafi heimsfaraldurs. Frá árinu 2017 höfum við séð 20% árlegan vöxt í fjölda notenda í appi og nú eru 99% snertinga við einstaklinga stafrænar. Við höldum áfram á stafrænni vegferð og meðal nýjunga sem við kynntum nýverið er viðbót í appið þar sem viðskiptavinir geta fylgst með kolefnisspori einkaneyslu sinnar. Nýlega kynntum við markmið Íslandsbanka um að ná fullu kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040. Undanfarin tvö ár hefur eigin rekstur bankans verið kolefnishlutlaus en nú á markmiðið einnig við um kolefnisspor af öllu lána- og eignasafni bankans. Við erum afar stolt af þessu markmiði sem er í takti við metnaðarfulla áætlun Íslands í loftslagsmálum. Á dögunum hlaut Íslandsbanki flest stig íslenskra fyrirtækja í UFS mati Reitunar en samkvæmt matinu hefur bankinn unnið vel að því að koma sjálfbærnimiðaðri hugsun inn í starfsemi bankans. Einnig hlaut bankinn Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf í þágu umhverfismála á síðasta ári. Þessir áfangar styðja svo sannarlega við það hlutverk bankans að vera hreyfiafl til góðra verka og sýnum við það í verki með góðum árangri á sviði sjálfbærnimála. Fjárhagsstaða bankans er áfram sterk og undirstöður traustar. Efnahagsreikningur bankans er traustur með eigin- og lausafjárhlutföll vel yfir innri markmiðum og kröfum eftirlitsaðila. Fjárhagsleg markmið bankans hafa verið uppfærð með það að markmiði að gefa skýrari mynd af þróun og áherslum í stefnu bankans. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á opinberum vettvangi lýst því yfir að unnið sé að skráningu hlutabréfa bankans á skipulegan verðbréfamarkað, að undangengnu útboði, og að stefnt sé að því að hún eigi sér stað í júní. Það er því ljóst að spennandi tímar eru framundan.
Íslenskir bankar Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira