Innlent

Landa­­mæra­vörður dæmdur fyrir ó­­lög­­legar upp­­flettingar í LÖKE

Atli Ísleifsson skrifar
Dómur Hæstaréttar í málinu féll í dag.
Dómur Hæstaréttar í málinu féll í dag. Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur dæmdi í dag landamæravörð til greiðslu 100 þúsund króna sektar í ríkissjóð að hafa ítrekað flett upp upplýsingum um fyrrverandi maka sinn og aðra konu í lögreglukerfinu, LÖKE, án þess að það tengdist starfi hennar.

Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Landsréttar frá í október. Konan skal greiða sektina innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu en sæta ella fangelsi í átta daga. Þá skal hún greiða allan áfrýjunarkostnað, alls um 800 þúsund krónur.

Konunni var gert það að sök að hafa á ákveðnu tímabili ítrekað flett upp málum í LÖKE sem tengdust fyrrverandi unnusta hennar og annarri konu sem hún hafði átt í samskiptum við vegna lögreglumáls. Hún hafi skoðað upplýsingar um þau og lögreglumál þeim tengd án þess að uppflettingarnar tengdust starfi hennar sem landamæravörður.

Konan viðurkenndi að hafa flett upp einstaklingunum í kerfinu, en neitaði því hins vegar að með athæfinu hafa misnotað stöðu sína með þeim afleiðingum að hallaði á réttindi þeirra.

Í dómi Hæstaréttar segir að konan hefði misnotað sér stöðu sína sem opinber starfsmaður og hallað réttindum þeirra sem upplýsingaöflunin hefði beinst að. Ásetningur hennar hefði staðið til þess að afla sér upplýsinga um tilgreinda einstaklinga og þannig misnota sér aðstöðu sína og skipti þá að öðru leyti engu hvort hún hefði um leið búið yfir ásetningi til þess að brjóta með þeirri háttsemi gagngert gegn réttindum einstakra manna samkvæmt 139. gr. almennra hegningarlaga.

Konan var fyrst sakfelld fyrir málið í Héraðsdómi Reykjaness þann 30. nóvember 2017 eftir að hún játaði brotin. Málinu var áfrýjað og það endurupptekið í héraði og var hún sakfelld að nýju þann 31. janúar 2019. Dómur féll svo í Landsrétti í október og var málinu svo áfrýjað til Hæstaréttar sem felldi dóm sinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×