Innlent

Ekkert sem bendir til þess hérlendis að breska afbrigðið sé skæðara

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm

Allt bendir til þess að hið svokallaða breska afbirgði Covid-19 sé álíka skætt og afbrigðin sem Íslendingar glímdu við fyrr í kórónuveirufaraldrinum. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi rétt í þessu.

Þórólfur kom inn á þá umræðu sem hefur áður átt sér stað að breska afbrigðið væri mögulega alvarlegra en önnur afbrigði SARS-CoV-2 en sagði að ef horft væri til sjúkrahúsinnlagna þá hefðu þær verið um 2,5 prósent frá 20. mars síðastliðnum.

Þetta væri svipað, jafnvel aðeins minna, en við sáum fyrr í faraldrinum.

Sóttvarnalæknir sagði tölurnar, níu einstaklingar af um 360, litlar og því bæri að vara varlega í að alhæfa en sagði smithæfni afbrigðisins einnig virðast svipað og annarra afbrigða.

Þannig hefðu 220 einstaklingar af 3.500 í sóttkví greinst frá 1. mars, sem væri um sex prósent. 

Þórólfur sagðist því búast við því að ef samfélagsleg útbreiðsla veirunnar yrði mikil nú, yrði atburðarásin svipuð og fyrr í faraldrinum.

Einhver en óljós samfélagsleg útbreiðsla

Fjórir liggja inni á Landspítalanum en enginn á gjörgæslu.

Um 1.700 sýni voru tekin í gær, að sögn sóttvarnalæknis. Hann sagðist að ekki hefði tekist að ná utan um þær hópsýkingar sem nú væru uppi í samfélaginu og þá væri áhyggjuefni að enn væru að greinast smit sem væri ekki hægt að rekja til áður greindra smita.

Þórólfur sagði útbreiðslu veirunnar í samfélaginu einhverja en ómögulegt væri að segja til um hversu mikil hún væri. Handahófsskimun Íslenskrar erfðagreiningar á dögunum benti þó ekki til þess að hún væri mikil.

Um 450 dvelja nú á sóttkvíarhótelum og segir Þórólfur aðgerðir á landamærunum ganga vel. Smit á landamærunum hefðu verið tvö í gær og hefði fækkað undanfarna daga. Átti hann þó ekki skýringu á því hvers vegna það væri.

Þórólfur sagðist gera ráð fyrir því að skila ráðherra minnisblaði um framhald sóttvarnaaðgerða um helgina en vildi ekki tjá sig um það efnislega á þessari stundu. 

Lauk hann máli sínu með því að ítreka enn og aftur að fólk færi í sýnatökum við minnstu einkenni, sinnti persónulegum sóttvörnum og forðaðist hópamyndun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×