Lífið

Covid setti strik í reikninginn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nýtt myndband frá Blóðmör frumsýnt á Vísi í dag. 
Nýtt myndband frá Blóðmör frumsýnt á Vísi í dag. 

Brennivín er fyrst lagið af væntanlegri breiðskífu sveitarinnar Blóðmör sem ber nafnið Í Skjóli Syndanna.

Platan inniheldur tólf lög sem eru öll frumsamin og með íslenskum texta. Hún kemur út á vegum Reykjavík Record Shop á vínyl og verður gerð í 250 eintökum. Settur útgáfudagur er 14. júní.

„Platan er búin að vera mjög lengi í fæðingu og í raun miklu lengur en við gerðum ráð fyrir. Lögin hafa orðið til á löngum tíma og sum af þeim voru ekki einu sinni komin með texta þegar við fórum í upptökur. Covid setti líka strik í reikninginn því upptökunum þurfti að fresta um tvo mánuði síðasta sumar vegna fyrstu bylgjunnar. En upptökurnar hófust í júní í fyrra og kláruðust um haustið. Birgir Þór Birgisson og Arnar Guðjónsson sáu um upptökur en Arnar mixaði líka plötuna. Friðfinnur Oculus endaði svo á því að mastera plötuna,“ segir Haukur Þór Valdimarsson úr Blóðmör.

Myndbandið við Brennivín er textamyndband.

„Vinur okkar Óttarr Proppé sá um að útbúa það, þó ekki hinn landsfrægi söngvari og fyrrverandi stjórnmálamaður heldur litli frændi hans og alnafni. Í myndbandinu fær plötuumslagið að njóta sín vel en það var hannað af Þorvaldi Guðna Sævarssyni sem er betur þekktur sem Skaðvaldur.”

Á dögunum gekk nýr bassaleikari til liðs við hljómsveitina.

„Hann heitir Viktor Árni Veigarsson en hann er enginn nýgræðingur þegar það kemur að hljómsveitastússi. Fólk gæti þekkt hann úr hljómsveitunum The Moronic, Forsmán eða Hvata og nú sem bassaleikari Blóðmör. Það er ljóst að það eru bjartir tímar fram undan hjá hljómsveitinni.”

Sveitina mynda þeir Haukur Þór Valdimarsson, Árni Jökull Guðbjartsson og Viktor Árni Veigarsson. Hér að neðan má sjá myndbandið við lagið sem frumsýnt er á Vísi í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.