„Vandinn snýr að sundurlyndi ríkisstjórnarinnar í þessu“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 6. apríl 2021 15:36 Fundi velferðarnefndar Alþingis um næstu skref í skugga niðurstöðu héraðsdóms er nú lokið en hann stóð yfir í um fjórar og hálfa klukkustund. Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, telur að það sé einna helst sundurlyndi ríkisstjórnarflokkanna um að kenna hvernig fór um reglugerð um skyldudvöl í sóttvarnarhúsi.
Þrátt fyrir að heilbrigðisráðherra myndi ákveða að leggja fram frumvarp til breytinga á sóttvarnalögum til að tryggja lagagrundvöll sóttvarnaaðgerða þá er Helga Vala ekki endilega sannfærð um að málið næði fram að ganga. Fundi velferðarnefndar Alþingis um næstu skref í skugga niðurstöðu héraðsdóms er nú lokið. Fundurinn hófst klukkan tíu í morgun og stóð því yfir í um fjóra og hálfa klukkustund. Sérfræðingar fyrir nefndina hver á fætur öðrum Í gær úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að ekki væri lagastoð fyrir reglugerð ráðherra um skyldudvöl fólks frá áhættusvæðum í sóttvarnarhúsi. Sóttvarnalæknir, í samráði við heilbrigðisráðuneytið, hefur kært niðurstöðuna til Landsréttar. Fyrir fund velferðarnefndar í dag komu meðal annars heilbrigðisráðherra, sóttvarnalæknir og lögspekingar sem rýndu í þá stöðu sem komin er upp. „Og þá þurfum við að íhuga hvað við viljum gera og hvernig við viljum bregðast við. Viljum við fara í lagasetningu? Mun ráðherra leggja fram frumvarp til breytinga á sóttvarnalögum, þá væntanlega í dag? Eða ætlum við að láta þetta duga það sem við erum að gera núna?“ En er kominn upp einhver rembihnútur? Ríkir ekki eining um að leggja fram frumvarp þannig að það sé styrkari lagastoð fyrir þessum aðgerðum? Hver er staðan og hvernig er andrúmsloftið, er eining um þetta? „Nei, ég var nú að glugga í frétt á Vísi þar sem einn ákveðinn þingmaður stjórnarliðsins, Sjálfstæðisflokksins lýsir yfir algjörri andstöðu við lagasetningu og mín tilfinning er sú að það séu nú fleiri þar innanborðs sem séu algjörlega andsnúnir því að lögin styðji þessar aðgerðir þannig að mér sýnist að helsti ágreiningurinn sé innan stjórnarflokkanna; á milli þeirra.“ En var uppleggið á fundinum sjálfum að stefna í átt að lagasetningu? „Við erum auðvitað löggjafinn. Alþingi er löggjafinn og þess vegna heyrir undir okkur að bregðast fljótt við ef vilji er fyrir því, þá þarf að vera meirihluti fyrir því og vandinn snýr að sundurlyndi ríkisstjórnarinnar í þessu. Stjórnarflokkarnir eru alls ekki samstíga um nauðsynlegar aðgerðir á þessum tímapunkti.“ Kom til tals að nefndin myndi leggja fram frumvarp? „Það var svona aðeins rætt, þeirri umræðu lauk ekki en það var aðeins rætt og er engin niðurstaða í því af því við erum að bíða eftir að fá að heyra í ráðuneytinu. Við væntum þess að heyra frá þeim seinna í dag. Heimsókn ráðherra var auðvitað snemma í morgun og síðan erum við búin að funda í fjóra og hálfa klukkustund þannig að ég á eftir að heyra í ráðuneytinu hver næstu skref eru þar“ Hver heldur þú að séu líklegustu næstu skref í málinu? „Mér þætti eðlilegt á þessum tímapunkti, svo ég tali bara út frá mér, að við styðjum og styrkjum lögin til að þessar heimildir haldi en aftur segi ég, mér sýnist ósamstaðan helst vera innan stjórnarflokkanna.“ Helga Vala segir að nokkrir þættir málsins hafi betur mátt fara. Ríkisstjórnin hafi í of miklum mæli haft þann háttinn á í faraldrinum að bregðast við í staðinn fyrir að sýna frumkvæði og árvekni. Ráðherrar á fundi í Hörpu á dögunum þar sem tilkynnt var um tíu manna samkomubann.vísir/vilhelm „Það er kannski aðallega það að svo virðist sem að upplýsingaflæðið sé ekki nægilega gott hjá þeim sem framkvæma eiga þær ráðstafanir sem stjórnvöld taka ákvörðun um. Og það virðist sem ríkisstjórnin sé í rauninni ekki fyrir framan aðgerðirnar heldur sé alltaf að bregðast við einhverjum óvæntum uppákomum jafnvel þó að um sé að ræða aðgerðir sem stjórnvöld sjálf setja, þá virðast þau ekki geta undirbúið sig fyrir ýmsa möguleika sem bregðast þarf við, það sést til dæmis á þessu útgöngubanni út af sóttvarnarhótelinu. Það er ekki hægt að sjá nein merki um að sóttvarnalæknir hafi lagt það til í minnisblaði sínu og fleira í þeim dúr. Og þegar hópurinn kemur á hótelið þá virðist vera sem starfsfólkið hafi ekki verið með allar upplýsingar alveg á hreinu. Þegar svo einhver mótmælir að þá virðist vera sem það hafi verið aðeins óljóst hver ætlaði að grípa þessi mótmæli og bera þau undir héraðsdóm.“ Helga Vala telur að fljótfærni sé ekki um að kenna í málinu. „Að mínu mati, ég verð bara að segja mína skoðun á þessu, en það var ekki samstaða innan stjórnarflokkanna á sínum tíma þegar við vorum að gera endurbætur á sóttvarnalögunum og þess vegna fer þetta ekki skýrt inn því það var ekki ætlunin að setja inn ákvæði um að sóttvarnalæknir gæti skyldað fólk til dvalar í sóttvarnarhúsi. Þetta er minn skilningur.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingi Tengdar fréttir Brynjar segist aldrei muni taka þátt í að breyta sóttvarnarlögum við þessar aðstæður Talið er víst að margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni setja sig alfarið á móti því að breyta sóttvarnarlögum í þá átt að löglegt sé að skikka fólk í sóttvarnarhús, komi til þess. 6. apríl 2021 14:18 Fólk segi fyrst frá þegar því sé lofað að sleppa við sekt Sóttvarnalæknir telur óvíst að það myndi skila tilætluðum árangri að beita hærri og tíðari sektum fyrir brot á sóttkví. Megnið af þeim sýkingum sem upp hafa komið að undanförnu má rekja til fólks sem hefur ekki haldið sóttkví, einkum þeirra sem hafa komið frá útlöndum. 6. apríl 2021 12:23 Segir ríkisstjórnina glannalega Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms um sóttkvíarhótel til Landsréttar og skorar á stjórnvöld að breyta lögum þannig að heimilt verði að skylda farþega þar í sóttkví. Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um næstu skref. 6. apríl 2021 12:11 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira
Brynjar segist aldrei muni taka þátt í að breyta sóttvarnarlögum við þessar aðstæður Talið er víst að margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni setja sig alfarið á móti því að breyta sóttvarnarlögum í þá átt að löglegt sé að skikka fólk í sóttvarnarhús, komi til þess. 6. apríl 2021 14:18
Fólk segi fyrst frá þegar því sé lofað að sleppa við sekt Sóttvarnalæknir telur óvíst að það myndi skila tilætluðum árangri að beita hærri og tíðari sektum fyrir brot á sóttkví. Megnið af þeim sýkingum sem upp hafa komið að undanförnu má rekja til fólks sem hefur ekki haldið sóttkví, einkum þeirra sem hafa komið frá útlöndum. 6. apríl 2021 12:23
Segir ríkisstjórnina glannalega Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms um sóttkvíarhótel til Landsréttar og skorar á stjórnvöld að breyta lögum þannig að heimilt verði að skylda farþega þar í sóttkví. Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um næstu skref. 6. apríl 2021 12:11