Innlent

Starfs­maður Hag­kaups í Garða­bæ smitaður

Atli Ísleifsson skrifar
Umræddur starfsmaður vinnur á nóttunni við áfyllingar og var við störf aðfaranótt laugardags og sunnudags um liðna helgi.
Umræddur starfsmaður vinnur á nóttunni við áfyllingar og var við störf aðfaranótt laugardags og sunnudags um liðna helgi. Vísir/Vilhelm

Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Umræddur starfsmaður vinnur á nóttunni við áfyllingar og var við störf aðfaranótt laugardags og sunnudags um liðna helgi.

Frá þessu segir á Facebook-síðu Hagkaups. Þar segir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, að starfsmaðurinn hafi lítið sem ekkert verið í samskiptum við viðskiptavini, borið grímu við störf sín og farið eftir þeim sóttvarnarreglum sem gilda á vinnustaðnum.

„Umfangsmikil sótthreinsun á öllum helstu snertiflötum í versluninni hefur þegar átt sér stað til að gæta fyllsta öryggis. Þeir starfsmenn sem unnu á sömu vöktum og umræddur starfsmaður um helgina verða sendir í skimum í dag og munu halda sig heima þar til rakningarteymi almannavarna hefur gefið grænt ljós á endurkomu. Öll viðbrögð við þessari stöðu eru unnin í nánu samstarfi við almannavarnir.

Starfsemi verslunarinnar helst óbreytt en vel verður fylgst með stöðu mála og brugðist hratt við ef aðstæður breytast,“ er haft eftir Sigurði.

Kæru viðskiptavinir. Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Umræddur starfsmaður...

Posted by Hagkaup on Tuesday, 9 March 2021
w

Tengdar fréttir

Þrír hafa greinst með veiruna innan­lands síðan á föstu­dag

Þrír hafa greinst með veiruna innan­lands síðan á föstu­dag. Einn á föstudag, tveir á laugardag, en enginn í gær, sunnudag. Sá sem greindist á föstudag var utan sóttkvíar. Annar þeirra sem greindist á laugardag var utan sóttkvíar, en hinn ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×