Innlent

Sýknaður af ákæru fyrir árás á fyrrverandi maka

Kjartan Kjartansson skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi ákæruvaldið ekki hafa axlað þá sönnunarbyrði sem á því hvíldi í málinu.
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi ákæruvaldið ekki hafa axlað þá sönnunarbyrði sem á því hvíldi í málinu. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann af ákæru um ofbeldi í nánu sambandi í síðustu viku. Karlmaðurinn var ákærður fyrir að ráðast á fyrrverandi maka sinn og barnsmóður, tekið hana hálstaki og hent henni út á stétt.

Konan kærði karlmanninn fyrir líkamsárás og heimilisofbeldi í júní árið 2019 en þau höfðu verið kærustupar. Sagði konan lögreglu að samband þeirra hefði verið stormasamt og að hann hefði beitt hana ofbeldi.

Lýsti hún árás þar sem karlmaðurinn hefði skellt hurð ítrekað á hönd hennar og öxl. Hann hefði svo ráðist á hana, tekið hana hálstaki, dregið út úr húsi og hent henni í stéttina. Í ákæru kom fram að konan hefði hlotið mar og sár af.

Karlmaðurinn lýsti atvikum á þann veg að konan hefði ítrekað reynt að ryðjast inn í herbergi hans, öskrað og formælt honum. Konan hefði hótað honum að hann fengi ekki að sjá börn þeirra aftur. Neitaði hann að hafa beitt konuna ofbeldi og hélt því fram að hún hefði getað fengið áverkana við að kasta sér á hurð.

Atvikið átti sér staða á heimili föður karlmannsins en sá sagðist ekki hafa orðið var við ofbeldi, aðeins rifrildi þeirra tveggja.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að engin vitni hafi orðið að atvikum heldur standi orð gegn orði. Taldi dómurinn framburð konunnar trúverðugan. Framburður ákærða hefði aftur á móti verið stöðugur og ekki væri hægt að slá því föstu að áverkar konunnar væru eftir ofbeldi af hans hálfu.

Taldi dómurinn því efni ákærunnar væri ósannað og sýknaði karlmanninn. Ríkissjóður greiðir allan sakarkostnað málsins, hátt í eina og hálfa milljón krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×