Handtekinn tvo daga í röð á Bíldudal Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. febrúar 2021 09:14 Í tilkynningu frá lögreglunni segir að maðurinn hafi verið við vinnu á Bíldudal. Vísir/Vilhelm Karlmaður var handtekinn tvo daga í röð á Bíldudal nú í vikunni, annars vegar vegna gruns um að vera valdur að líkamsárás og hins vegar vegna gruns um að hafa ógnað tveimur einstaklingum með hníf.
Í Facebook-færslu lögreglunnar á Vestfjörðum segir að síðastliðið sunnudagskvöld hafi lögreglan verið kölluð að íbúðarhúsi á Bíldudal þar sem átök höfðu átt sér stað en Vísir greindi frá málinu fyrr í vikunni. „Þegar lögreglu bar að var þar maður með áverka og skerta meðvitund. Annar karlmaður var á staðnum og var hann handtekinn og færður í fangageymslu á Patreksfirði, grunaður um að hafa verið valdur að árásinni. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík. Hann reyndist síðar ekki með alvarlega áverka,“ segir í færslu lögreglunnar. Bíldudalur - Að kveldi sunnudagsins 14. febrúar var lögregla kölluð að íbúðarhúsi á Bíldudal þar sem átök höfðu átt...Posted by Lögreglan á Vestfjörðum on Thursday, February 18, 2021 Hinum grunaða var sleppt lausum daginn eftir að lokinni yfirheyrslu. Síðar sama dag var lögreglan hins vegar aftur kölluð að sama húsi á Bíldudal vegna tilkynningar um að sami maður hefði ógnað tveimur manneskjum með hníf. „Einnig var kona handtekin á staðnum, en hún hafði veist að lögreglunni og reynt að hindra handtöku árásaraðilans. Bæði sátu þau í fangageymslu lögreglunnar þar til daginn eftir. Þeim var sleppt lausum að yfirheyrslu lokinni. Þau munu hafa bæði hafa verið við vinnu á Bíldudal. Mál fólksins er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum.“
Lögreglumál Vesturbyggð Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Erlent Fleiri fréttir Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sjá meira