Á sunnudaginn ætlar hún að gera sínar klassísku vatnsdeigsbollur í beinni á Instagram og geta áhugasamir fylgst með eða jafnvel bakað með henni á eigin heimili. Nánari upplýsingar má finna á Instagram síðunni @evalaufeykjaran.
Hér fyrir neðan má finna klassíska uppskrift af vatnsdeigsbollum frá Evu Laufey og myndband af aðferðinni er svo neðst í fréttinni. Þetta brot er úr þáttunum Í Eldhúsi Evu.
Vatnsdeigsbollur
10 – 12 bollur
- 100 g smjör
- 2 dl vatn
- 2 msk sykur
- 110 g hveiti
- 3 stór egg
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C. (blástur)
- Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 – 3 mínútur áður en hveitið er sett út í.
- Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.
- Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.
- Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.
- Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli.
Hugmyndir að fyllingum má finna hér fyrir neðan.

Nutella – og bananarjómi
Þetta er fyllingin sem þið óskið að taki aldrei enda, hún er of góð til að vera sönn. (en þetta er engu að síður sönn saga)
- 4 dl rjómi
- 1 banani
- 3 msk. Nutella
Aðferð:
- Þeytið rjóma.
- Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.
- Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.
Jarðarberjafylling
Klassísk og góð fylling sem fær mig til þess að fara aftur í tímann þegar ég var yngri og fékk pening hjá mömmu til þess að hlaupa út í bakarí og kaupa mér eina gómsæta bollu með dísætu bleiku kremi. Nostalgían í hámarki við hvern bita…
- 1 askja jarðarber (10 – 12 stk)
- 4 dl rjómi
- 2 tsk. flórsykur
Aðferð:
- Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
- Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin
- Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.