Finnur Freyr hættur sem þjálfari Horsens og á leið heim Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. maí 2020 21:40 „Finnur sem allt vinnur“ er á leið heim til Íslands. Sjáum við hann í Domino´s deildinni á næstu leiktíð? Vísir/Horsens
Finnur Freyr Stefánsson hefur ákveðið að segja upp sem þjálfara hjá danska körfuknattleiksfélaginu Horsens. Finnur Freyr tók við liðinu fyrir síðustu leiktíð og kom liðinu til að mynda í úrslit danska bikarsins. Þar áður gerði Finnur Freyr garðinn frægan með KR er liðið varð Íslandsmeistari fimm ár í röð undir hans stjórn. Þá hefur hann verið í þjálfarateymi íslenska karlalandsliðsins. Horsens tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni í dag en ákvörðunina tekur Finnur að hluta til vegna ástandsins sem nú ríkir sökum kórónufaraldursins. „Það er með mikill sorg sem ég segi frá því að ég hef ákveðið að yfirgefa Danmörku og snúa aftur til Íslands. Vegna mikillar óvissu sökum kórónufaraldursins þá fannst okkur óþægilegt að vera svona langt frá fjölskyldum okkar, sérstalega þar sem við eigum tvö ung börn," er haft eftir Finni í Facebook-færslu félagsins. „Við munum horfa til baka á tíma okkar hjá Horsens með bros á vör. Hlýjar móttökur gerðu flutningana mun auðveldari. Við viljum þakka öllum fyrir hjálpina og þann tíma sem við eyddum saman. Horsens er í góðum höndum þar sem liðið er með góðan kjarna leikmanna, metnaðarfulla stjórn og bestu stuðningsmenn Danmerkur,“ segir Finnur einnig. Þó Finnur hafi verið samningsbundinn Horsens áfram þá segist félagið skilja ákvörðun hans og ekki vilja standa í vegi fyrir honum. Það þakkar honum jafnframt fyrir vel unnin störf og hrósar honum fyrir vel unnin störf, bæði innan sem utan vallar.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira