Atvinnurekendur mótmæla hækkun á eftirlitsgjöldum Heimir Már Pétursson skrifar 28. apríl 2020 10:11 Félag atvinnurekenda segir eftirlitsgjöld á innflutt matvæli og matvæli framleidd hér á landi hafa hækkað um tæp 30 prósent á undanförnum fjórum árum. Vísir/Vilhelm
Félag atvinnurekenda mótmælir hækkun á gjaldi og afnámi afsláttar hjá Matvælastofnun fyrir greiningu sína frá fyrirtækjum í innflutningi og framleiðslu matvæla sem tilkynnt hafi verið um í síðustu viku. Gjöldin hafi þegar hækkað mikið á undanförnum árum eða 29,1 prósent frá árinu 2016. MAST tekur gjöld fyrir eftirlit og sýnatökur úr innfluttum matvörum og matvörum sem framleiddar eru hér á landi.Vísir/Vilhelm Í tilkynningu frá FA segir að félagið hafi sent Matvælastofnun (MAST) erindi og mótmælt boðaðri hækkun opinbers eftirlitskostnaðar matvælafyrirtækja. Í síðustu viku hafi mörgum fyrirtækjum borist tölvupóstur frá MAST þar sem greint hafi verið frá fyrirhugaðri gjaldskrárhækkun vegna skimunar fyrir óæskilegum varnarefnum í matvælum. Í póstinum sé vakin athygli á því að rannsóknastofan hafi hækkað verð á greiningum og fellt niður afslátt sem eftirlitsaðilar höfðu. Reikningar vegna kostnaðar við greiningu hvers sýnis muni því óhjákvæmilega hækka. Í erindi FA til MAST er þessari hækkun harðlega mótmælt. „Það vekur mikla furðu Félags atvinnurekenda að við núverandi aðstæður í íslenzku atvinnulífi, þar sem fyrirtæki berjast fyrir lífi sínu vegna afleiðinga heimsfaraldurs COVID-19, skuli boðuð hækkun opinberra eftirlitsgjalda. Stjórnvöld hafa undanfarnar vikur fremur leitazt við að draga úr kostnaði fyrirtækja,“ segir Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri í bréfinu. „Hér er um að ræða aukinn kostnað fyrir innflytjendur og framleiðendur matvæla, sem mun óhjákvæmilega leiða til hækkana á verði matvöru, til viðbótar við verðhækkanir vegna gengisbreytinga.“ FA vekur ennfremur athygli á því að kostnaður við greiningu hvers sýnis hafi hækkað mikið undanfarin ár, úr 81.760 krónum árið 2016 í 105.578 krónur fyrr á þessu ári eða um 29,1%. Þá sé gjaldtaka vegna sýnatökunnar sjálfrar ótalin. Í sumum tilvikum séu teknir tugir sýna hjá sama fyrirtækinu sem þýði að kostnaður hvers fyrirtækis getui hlaupið á milljónum króna. Félag atvinnurekenda leggur til ýmsar leiðir til að lækka eftirlitskostnaðinn. „Matvælafyrirtæki geta alltént ekki sætt sig við einhliða hækkanir opinbers eftirlitskostnaðar á þessum erfiðu tímum,“ segir í bréfi FA til MAST. Kristjáni Þór Júlíussyni landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hafi verið sent afrit af bréfinu og fengið þær upplýsingar að málið sé til skoðunar í ráðuneytinu.
Matvælaframleiðsla Matur Tengdar fréttir Sjálfbær matvælaframleiðsla í hringrásarhagkerfinu Við erum stödd í byggðakjarna á Íslandi. Affallsvarminn af hitaveitukerfinu er nýttur til upphitunar gróðurhúsa, umframorkan frá fiskvinnslufyrirtækinu (stóriðju staðarins) nýtist til húshitunar og til að kynda gróðurhúsin og mögulega fiskeldi. 1. apríl 2020 11:30 Fljúga áfram með matvæli til íbúa Austur-Grænlands Air Iceland mun áfram sinna stöku vöruflutningum til Grænlands, þótt félagið hafi tilkynnt fyrir tíu dögum að allt áætlunarflug félagsins þangað hefði verið fellt niður. 30. mars 2020 23:05 Matvælaöryggi er úrelt orð Ég hef alla tíð heillast af sögu og hæfileikum fólks sem kann að segja frá. Líklega hefur afi minn heitinn sem ég ólst upp með þar mest áhrif, en hann var einn af mínum bestu vinum. 21. mars 2020 19:00 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Sjá meira
Sjálfbær matvælaframleiðsla í hringrásarhagkerfinu Við erum stödd í byggðakjarna á Íslandi. Affallsvarminn af hitaveitukerfinu er nýttur til upphitunar gróðurhúsa, umframorkan frá fiskvinnslufyrirtækinu (stóriðju staðarins) nýtist til húshitunar og til að kynda gróðurhúsin og mögulega fiskeldi. 1. apríl 2020 11:30
Fljúga áfram með matvæli til íbúa Austur-Grænlands Air Iceland mun áfram sinna stöku vöruflutningum til Grænlands, þótt félagið hafi tilkynnt fyrir tíu dögum að allt áætlunarflug félagsins þangað hefði verið fellt niður. 30. mars 2020 23:05
Matvælaöryggi er úrelt orð Ég hef alla tíð heillast af sögu og hæfileikum fólks sem kann að segja frá. Líklega hefur afi minn heitinn sem ég ólst upp með þar mest áhrif, en hann var einn af mínum bestu vinum. 21. mars 2020 19:00