Boðar nýja viðbyggingu við Þjóðleikhúsið Andri Eysteinsson skrifar 23. apríl 2020 13:00 Lilja hefur óskað eftir endurskoðun á áformum um viðbyggingu við Þjóðleikhúsið frá 2006. Vísir/Vilhelm
Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, hefur óskað eftir því að endurskoðun fari fram á áætlunum sem unnar voru um endurbætur, breytingar og viðbyggingu við Þjóðleikhúsið árið 2006. Í grein sinni sem birtist í Morgunblaðinu í dag gerir Lilja Þjóðleikhúsið að umfjöllunarefni sínu en í ár eru 70 ár liðin frá því að Þjóðleikhúsið var vígt. Húsið var formlega vígt Sumardaginn fyrsta 20. apríl 1950. Lilja segir þjóðleikhúsbygginguna hafa breyst og þróast með tímanum. Viðhald byggingarinnar hafi oft verði vanrækt og að endingu hafi verið ráðist í umfangsmiklar endurbætur á níunda áratug síðustu aldar. Endurbyggingu hússins sem hafi verið árið 1990 sé hins vegar ekki lokið og fjöldi þeirra rýma sem nýtt eru til leiksýninga Þjóðleikhússins sé ekki til þess ætlaður. Nefnir Lilja þar þá staðreynd að tveir sýningarsalir séu í gömlu íþróttahúsi og að í gamla kolakjallaranum sé nú lítið svið. Á sjötíu ára afmæli Þjóðleikhússins hefur Lilja því óskað eftir því að áætlanir frá 2006 verði endurskoðaðar með það að markmiði að móta nýjar tillögur um viðbyggingu við Þjóðleikhúsið til þess að búa listamönnum og gestum bætta aðstöðu til frambúðar.
Menning Leikhús Mest lesið Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Erlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Innlent Fleiri fréttir Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Sjá meira