Innlent

Tólf greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Um 5.600 manns hafa smitast af kórónuveirunni á Íslandi frá upphafi faraldursins.
Um 5.600 manns hafa smitast af kórónuveirunni á Íslandi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Átta þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru 34 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af fjórir á gjörgæslu. Í gær voru 33 á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þrír á gjörgæslu.

Fimm greindust smitaðir á landamærum í gær – einn með virkt smit og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum fjögurra.

127 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 124 í gær. Þá eru 174 í sóttkví í dag, samanborið við 253 í gær.

Þriðja bylgjan.

Af þeim tólf sem greindust í gær greindust fimm eftir svokallaða einkennasýnatöku og sjö í sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 26,7 líkt og í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 12,0 , en var 11,5 í gær.

Alls hafa 5.604 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 28 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 843 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 1276 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 153 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×