Innlent

Átta greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Um 5.600 manns hafa greinst með Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.
Um 5.600 manns hafa greinst með Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Átta greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru 33 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu. 

Átta greindust smitaðir á landamærum í gær og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum þeirra allra.

124 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 129 í gær. Þá eru 253 í sóttkví í dag, samanborið við 278 í gær.

Þriðja bylgjan.

Af þeim átta sem greindust í gær greindust þrír eftir svokallaða einkennasýnatöku og fimm í sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 26,7 en var 28,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 11,5, en var 11,2 í gær.

Alls hafa 5.588 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 28 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 865 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 797 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 29 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×