Innlent

Fjórtán greindust með veiruna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi

Fjórtán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir voru utan sóttkvíar við greiningu.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Tveir greindust á landamærum og beðið er niðurstöðu mótefnamælingar í tilefnum þeirra beggja.

195 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 212 í gær. Þá eru 544 í sóttkví í dag, samanborið við 679 í gær.

Af þeim fjórtán sem greindust í gær greindust þrettán eftir svokallaða einkennasýnatöku en einn eftir sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 45,5 en var 45,8 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 10,4 en var 11,2 í gær.

Alls hafa nú 5.476 manns greinst með kórónuveiruna á Íslandi frá upphafi faraldursins. Á síðunni kemur fram að af þeim sem greinst hafa með Covid-19 á Íslandi eru 27 látin.

Alls voru tekin 800 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 301 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 143 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun og 21 á vegum Íslenskrar erfðagreiningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×