Innlent

Sjö greindust með veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Tveir af þeim sjö sem greindust voru í sóttkví.
Tveir af þeim sjö sem greindust voru í sóttkví. Vísir/Vilhelm

Sjö greindust með veiruna innan­lands í gær. Tveir af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví, eða um 29 prósent. Fimm þeirra sem greindust í gær voru utan sóttkvíar, eða 71 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Nú eru 45 á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu. Í gær voru 43 á sjúkrahúsi og þar af tveir á gjörgæslu.

Tveir greindust smitaðir á landamærum – einn með virkt smit og hinn reyndist vera með mótefni.

176 manns eru nú í einangrun, samanborið við 186 í gær. Þá eru 291 í sóttkví í dag, samanborið við 246 í gær.

Þriðja bylgjan.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 34,4 en var 39,5 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 12,8, en var 11,5 í gær.

Nú hafa 5.312 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 26 nú látnir.

Alls voru tekin 689 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 157 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 47 sýni tekin í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu og ellefu í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×