Innlent

Sjö greindust með veiruna innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Sex af þeim sjö sem greindust voru í sóttkví við greiningu.
Sex af þeim sjö sem greindust voru í sóttkví við greiningu. Vísir/Vilhelm

Sjö greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Sex af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví, eða 86 prósent. Einn þeirra sem greindist í gær var utan sóttkvíar, eða 14 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls eru 57 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af fjórir á gjörgæslu. Í gær voru 59 á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu.

Tveir greindust á landamærum og er niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilvikum beggja.

302 manns eru nú í einangrun, samanborið við 340 í gær. Þá eru 563 í sóttkví í dag, samanborið við 693 í gær.

Þriðja bylgjan.

Af þeim sjö sem greindust innanlands í gær greindust sex eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni, en einn eftir svokallaða sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 61,1 en var 66,8 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 9,0, en var 8,5 í gær.

Nú hafa 5.215 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir ennfremur að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 25 nú látnir.

Alls voru tekin 870 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 301 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 124 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun og 293 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×