Geimfararnir komnir að Alþjóðlegu geimstöðinni Kjartan Kjartansson skrifar 17. nóvember 2020 09:49 Dragon-geimferja SpaceX leggst að Alþjóðlegu geimstöðinni í nótt. AP/sjónvarpsstöð NASA
Geimferja SpaceX með fjóra geimfara innanborðs lagði að Alþjóðlegu geimstöðinni á braut um jörðu í nótt. Þetta var fyrsta reglulega ferð einkarekna geimferðafyrirtækisins með geimfara til geimstöðvarinnar. „En hvað þetta er góð rödd að heyra í. Við getum ekki beðið eftir að fá ykkur um borð,“ sagði Kate Rubins, geimfari um borð í geimstöðinni þegar Mike Hopkins, stjórnandi Dragon-geimferjunnar, hafði samband um talstöð þegar ferjan tengdist geimstöðinni, að sögn AP-fréttastofunnar. Ferðin í geimstöðina tók rúmar 27 klukkustundir en geimferjunni var skotið á loft á aðfaranótt mánudags. Geimfararnir fjórir eiga að dvelja um borð í geimstöðinni næsta hálfa árið. Þetta var aðeins í annað skiptið sem SpaceX skaut mönnum á loft með geimferju sinni. Fyrsta tilraunaflugið var með tvo bandaríska geimfara sem fóru til geimstöðvarinnar í tvo mánuði í maí. Ferðin nú er fyrsta reglulega ferð SpaceX með geimfara og farm til geimstöðvarinnar fyrir bandarísku geimvísindastofnunina NASA. SpaceX og Boeing eru með samning við NASA um að smíða geimferjur og halda úti ferðum til og frá geimstöðvarinnar.
Geimurinn Tækni SpaceX Alþjóðlega geimstöðin Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Fleiri fréttir Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Sjá meira